Hör eða bómullarskyrta sem virkar allt árið
Klassískar skyrtur úr náttúrulegum efnum eins og bómull eða hör eru eitthvað sem fer aldrei úr tísku. Hvít eða ljósblá skyrta virkar jafnt yfir sundfötin í sumarfríinu sem og undir blazer í september. Leitaðu að sniði í yfirstærð, 100% bómull eða hör og í hlutlausum lit.
Leðurtaska sem kostar of mikið á fullu verði
Á útsölum lækkar oft verð á fylgihlutum sem sjaldan fara á afslátt. Leðurtaska í klassísku sniði eru skynsamleg kaup. Vertu viss um að spyrja sjálfa þig hvort þú værir líkleg til að nota hana eftir nokkur ár áður en þú fjárfestir.
Gallabuxurnar sem þú kaupir aftur og aftur
Það getur verið freistandi að prófa ný trend á útsölu en bestu kaupin eru oft ný útgáfa af uppáhaldssniðinu. Skoðaðu klassísk, bein snið af gallabuxum í stífri bómullarblöndu í dökkbláum, klassískum bláum eða hvítu fyrir vor- og sumarmánuðina.
Sumarkjóll sem lifir fram á haust
Ekki kaupa dress fyrir eina veislu. Veldu kjól sem virkar jafnt með sandölum núna sem og stígvélum þegar fer að hausta. Skoðaðu efnablönduna vel og veldu frekar miðlungs eða sítt snið sem stenst tímans tönn og tískustrauma.
Prjónaflík fyrir september-sjálfið þitt
Bestu útsölukaupin eru oft flíkurnar sem þú þarft eftir tvo mánuði. Vertu með augun opin fyrir prjónaflíkum úr merínóull, bómull eða kasmírblöndu.
Strigaskór sem passa við allt
Útsölur eru réttu tíminn til að kaupa gæðaskó á góðu verði.
Barnavörurnar sem erfast áfram
Það er freistandi að kaupa mikið af barnafötum á útsölum en bestu kaupin eru yfirleitt vörurnar sem endast í gegnum fleira en eitt barn. Regnfatnaður, ullarvörur, vetrarfatnaður, skór í næstu stærð og hágæðavörur sem fara sjaldan á útsölu eru góð kaup.
Heimilið fær yfirhalningu
Stundum þarf ekki ný húsgögn til að breyta stemningunni heima. Á útsölum finnur þú oft allskyns textíl, skemmtileg ljós, rúmföt og smáhluti sem gefa heimilinu ferskt yfirbragð. Heimilislínur fara oft á afslátt á útsölu þrátt fyrir að vörurnar séu klassískar og virka allt árið um kring. Hafðu augun opin fyrir gæðarúmfötum og rúmteppum, handklæðum úr náttúrulegum efnum, borðlömpum, vösum og hönnunarvöru sem krydda heimilið, mjúkum púðum og teppum í hlutlausum lit.
Blazer sem setur punktinn yfir i-ið
Það eru fáar flíkur sem við notum jafn mikið og góður blazer. Augljóslega góð kaup. Hafðu augun opin fyrir einum í nútral lit og örlítilli yfirstærð.
Útsölur geta verið bæði frelsandi og yfirþyrmandi. Rauðir verðmiðar blikka úr öllum áttum, körfur fyllast af „tilboðum“ og áður en varir er auðvelt að koma heim með hluti sem voru ódýrir en ekki endilega góð kaup.
Leyndarmálið við vel heppnaða útsöluferð snýst nefnilega ekki endilega um mesta afsláttinn. Það snýst um að finna hlutina sem þú hefðir viljað eignast hvort sem þeir væru á útsölu eða ekki. Flíkina sem þú grípur aftur og aftur í, töskuna sem eldist fallega, strigaskóna sem verða hluti af daglegu lífi eða heimilisvöruna sem gerir hversdagsleikann aðeins betri.
Sjáumst á útsölunni í Smáralind!