Fara í efni

Fullkominn forréttur

Lífsstíll - 5. maí 2020

Stundum er einfaldleikinn hreinlega bestur. Þessi sumarlegi forréttur frá Berglindi í Gotterí og gersemar er ætlaður fyrir 5-7 manns eða sem smáréttur. Fullkominn á björtu sumarkvöldi með ísköldu hvítvíni.

Uppskriftin að hinum fullkomna forrétti

Sumarlegur rækjuforréttur í boði Berglindar hjá Gotterí og gersemar.

Rækjur

  • 800-1000 g tígrisrækja  
  • 250 ml ólífuolía 
  • 4 hvítlauksrif (pressuð/rifin) 
  • 2 x skalottlaukur (fínt saxaðir) 
  • 1 lúka steinselja (fínt söxuð) 
  • 1 lúka kóríander (fínt saxað) 
  • 1 x lime (börkurinn rifinn smátt) 
  • 1 x rautt ferskt chili (smátt saxað) 
  • 1 tsk. maldonsalt 
  • ¼ tsk. pipar 
  • ½ tsk. Chili Explosion krydd 
  • Bambuspinnar 

Leiðbeiningar

  1. Afþýðið, skolið og þerrið rækjurnar. 
  2. Blandið öllum öðrum hráefnum saman í skál og bætið þá rækjunum út í.  
  3. Veltið rækjunum vel upp úr blöndunni, plastið og geymið í kæli í að minnsta kosti 2 klukkustundir en þetta má einnig gera kvöldinu áður. 
  4. Raðið 3 rækjum á hvern bambuspinna (gott að leggja þá fyrst í bleyti í vatn) og grillið við meðalháan hita í um 3 mínútur á hvorri hlið eða þar til þær verða bleikleitar og stinnar. Gott er að pensla afgangs marineringunni á rækjurnar aftur í lokin.  

Hvítlaukssósa 

  • 180 g sýrður rjómi 
  • 180 g majónes 
  • 2 hvítlauksrif (pressuð/rifin) 
  • 1 lúka steinselja (söxuð) 
  • 1 x lime (safinn) 
  • 1 tsk. salt 
  • ¼ tsk. pipar 
  • 1 tsk. Chili Explosion 

Leiðbeiningar

  1. Allt sett í skál og hrært vel saman.  
  2. Gott er setja sósuna í ísskáp og leyfa henni að standa í um 1-2 klst áður en hún er borin fram en hana má einnig gera deginum áður og geyma í lokuðu íláti í kæli.  

Annað meðlæti 

  • 1 x baguette brauð 
  • 1 poki klettasalat 
  • Parmesan ostur 
  • Virgin ólífuolía 
  • Maldon salt
  • Lime (til skrauts)
  1. Skerið brauðið í sneiðar, raðið á ofngrind.  
  2. Penslið sneiðarnar með ólífuolíu og setjið smá maldon salt yfir, ristið í 190° heitum ofni í um 3-5 mínútur eða þar til það er orðið stökkt að utan. 
  3. Raðið síðan á disk: Klettasalat, smá virgin ólífuolía, rifinn parmesanostur, brauðsneið, rækjuspjót, limesneið og hvítlaukssósa.  

Fullkominn á björtu sumarkvöldi með ísköldu hvítvíni.

Meira úr lífsstíl

Lífsstíll

Hugmyndir að mæðradagsgjöf

Lífsstíll

Stílistinn okkar með tips fyrir Kauphlaup

Lífsstíll

Heitar hugmyndir að konudagsgjöf

Lífsstíll

Byrjaðu árið af krafti og náðu markmiðum þínum!

Lífsstíll

Vertu smart í ræktinni!

Lífsstíll

Góð ráð til að ná úr sér janúar sleninu

Lífsstíll

Nokkur vel valin tips fyrir gamlárskvöld

Lífsstíll

Sniðugar jólagjafahugmyndir undir 5.000 kr.