
Vatnsdeigslengjur með kaffirjóma
(15-18 lengjur)
- 180 g smjör
- 360 ml vatn
- 200 g hveiti
- 1 tsk. lyftiduft
- ¼ tsk. salt
- 3-4 egg (160 g)
- Hitið ofninn í 180°C.
- Hrærið saman hveiti, lyftidufti og salti í skál og geymið.
- Hitið saman vatn og smjör í potti þar til smjörið er bráðið og blandan vel heit og takið þá af hellunni.
- Hellið hveitiblöndunni saman við smjörblönduna og hrærið/vefjið saman við með sleif þar til allir kekkir eru horfnir og blandan losnar auðveldlega frá köntum pottsins.
- Flytjið blönduna yfir í hrærivélarskálina og hrærið á lægsta hraða með K-inu og leyfið hitanum þannig að rjúka aðeins úr blöndunni.
- Pískið eggin saman í skál og setjið þau saman við í litlum skömmtum og skafið niður á milli. Best er að vigta blönduna því egg eru misstór og nota aðeins 160 g henni til þess að deigið verði ekki of þunnt.
- Setjið deigið í sprautupoka með um 1,5 cm breiðum stút og sprautið 15 cm lengjur á bökunarpappír með gott bil á milli.
- Bakið í 27-30 mínútur, lengjurnar eiga að vera orðnar vel gylltar og botninn líka, ekki opna þó ofninn fyrr en í fyrsta lagi eftir 25 mínútur til að kíkja undir eina.
Fylling
- 600 ml rjómi
- 2 msk. flórsykur
- 15 g fínmalað instant kaffiduft
- 125 g saxað Toffifee (1 pakki)
- Þeytið saman rjóma, flórsykur og instant kaffiduft.
- Vefjið söxuðu Toffifee saman við og fyllið lengjurnar með kaffirjóma.
Súkkulaðiglassúr og skraut
- 100 g brætt smjör
- 210 g flórsykur
- 2 msk. Cadbury bökunarkakó
- 2 tsk. vanilludropar
- 3 msk. uppáhellt kaffi
- Toffifee
- Hrærið saman brætt smjör, flórsykur, bökunarkakó, vanilludropa og kaffi þar til slétt og falleg súkkulaðibráð hefur myndast.

Bon Appétit!