Sjálfbærni stór faktor
Kaupmannahöfn heldur áfram að vera leiðandi afl í sjálfbærri tísku. Endurunnin efni, uppgerðar flíkur og tímalaus hönnun voru rauður þráður í fjölmörgum sýningum og eru nú orðin órjúfanlegur hluti af fagurfræðinni - ekki aðeins skilaboðum vörumerkjanna.
Skrautlegir og skandílegir fylgihlutir
Litríkir sokkar, áberandi hattar, stór sólgleraugu, litríkar töskur og skúlptúraðir skartgripir er eitthvað sem við sjáum nóg af í heimsókn okkar til Kaupmannahafnar.
Mínimalískir sandalar
Sérlega mínimalískir sandalar og svokallaðir kitten hælar hafa verið mál málanna síðustu misserin og halda því áfram ef marka má skandinavísku stílstjörnurnar.
Götutískan í Köben
Við höldum áfram að sjá blazera í yfirstærð og gegnsæ efni og blúnda heldur áfram að njóta vinsælda. Systur okkar á norðurlöndunum eru jafnframt óhræddar við að blanda saman ólíkum stílum og para sparilegan klæðnað við sportí flíkur og fylgihlutir með einstaklega flottum árangri. Prjónaðar og heklaðar flíkur halda áfram að eiga sitt pláss í sviðsljósinu, ásamt blúndukjólum, víðum skyrtum og pilsum yfir buxur. Útkoman er afslöppuð en um leið fáguð – stíll sem skandí systur okkar virðast hafa fullkomnað.