Fara í efni

Stærsta Levi´s verslunin á Íslandi frá upphafi opnar í Smáralind

Tíska - 2. júní 2026

Levi’s hefur verið órjúfanlegur hluti af tískusögu landsins í hálfa öld og fest sig í sessi sem eitt allra vinsælasta gallabuxnavörumerkið hér á landi, líkt og víða um heim. Levi´s hefur í gegnum árin haft þá sérstöðu að vera bæði klassískt og síbreytilegt í senn, og höfðar þannig jafnt til eldri kynslóða sem og nýrra sem enduruppgötva stílinn aftur og aftur.

Nú eru tekin stór og spennandi skref í þeirri sögu þegar stærsta Levi’s-verslun landsins frá upphafi opnar í Smáralind þann 3. júní. Þar sameinast sagan, stíllinn og framtíðin í öflugri verslun, í takt við vörumerki sem hefur alltaf náð að halda sér í fremstu röð, kynslóð eftir kynslóð.

Levi´s býður 23% afslátt af öllum vörum 3.-7. júní!

Það má með sanni færa sterk rök fyrir því að 501 gallabuxurnar séu ein áhrifamesta flík mannkynssögunnar. Fáar flíkur hafa náð að tengja saman jafn ólíka hópa fólks og haldið vinsældum sínum í áratugi eins og þessi sígildi gallabuxnastíll. Kúrekar og námumenn lögðu grunninn að goðsögninni, en síðar tóku rokkstjörnur, fyrirsætur, Hollywood-stjörnur og jafnvel Steve Jobs við keflinu. Í gegnum kynslóðirnar hafa 501 buxurnar farið frá því að vera vinnufatnaður yfir í að verða ein helsta nauðsynjavaran í fataskáp okkar allra, flík sem stenst tímans tönn og fer aldrei úr tísku.

Saga Levi´s er einstök og vörumerkið heldur áfram á blómstra á Íslandi með stækkun verslunarinnar í Smáralind.
Lilja Bjarnadóttir kaupmaður og eigandi Levi´s á Íslandi.

Levi´s stækkar

Lilja hefur verið tengd Levi’s á Íslandi frá árinu 2003, þegar hún keypti rekstur Levi’s-verslunarinnar af Pétri Arasyni sem var frumkvöðullinn sem kom vörumerkinu fyrst til landsins upp úr 1970. Í upphafi voru Levi’s-vörur seldar í versluninni Faco á Laugavegi 37, en um 1980 var opnuð sérstök Levi’s-verslun sem markaði upphaf sérhæfðs reksturs merkisins hér á landi. Allar götur síðan hefur Levi’s verið rekið sem sérleyfisverslun á Íslandi, og nú tekur næsti kafli við þegar stærsta Levi’s-verslun landsins frá upphafi opnar í glæsilegu rými í Smáralind.

Hver telur þú að sé lykillinn að langlífi og vinsældum Levi’s?

 „Styrkur Levi’s sem vörumerkis er einstakur. Það er auðvitað merkilegt að fyrirtækið hafi verið stofnað árið 1853, á tímum gullæðisins í Bandaríkjunum, en það sem hefur raunverulega haldið því á toppnum er hæfileikinn til að vera alltaf í takt við tíðarandann. Í gegnum árin hafa jafnt kúrekar, hippar, rokkarar, stjórnmálamenn og allskonar fólk úr ólíkum áttum klæðst Levi’s. Levi’s byggir á sterkri arfleifð og klassískum stíl, en hefur aldrei staðnað. Þvert á móti hefur fyrirtækið verið leiðandi þegar kemur að nýjum tískustraumum og þróun á gallaefnum. Mikil áhersla er lögð á nýsköpun, bæði til að bæta gæði fatnaðarins og gera framleiðsluna umhverfisvænni. Það er þessi blanda af sögu, gæðum og stöðugri framþróun sem hefur gert Levi’s að einu þekktasta og áhrifamesta fatamerki heims.“

Hvað hefur verið vinsælast í gegnum tíðina?

 „Frá upphafi hefur Levi’s 501 verið langvinsælasta sniðið hjá okkur, og ég held að það sé jafnvel eitt mest selda gallabuxnasnið í heimi. Það sem er sérstaklega skemmtilegt við 501 er að það kemur alltaf aftur inn í tískuna hjá yngri kynslóðum, sem gerir það að verkum að sniðið lifir ótrúlega vel í gegnum áratugina. Svo er líka ákveðinn kjarni viðskiptavina sem er tryggt 501 og vill alltaf eiga að minnsta kosti eitt eða tvenn pör í fataskápnum sínum. Þetta er því bæði klassík sem stendur alltaf fyrir sínu og vara sem heldur áfram að endurnýja sig hjá nýrri kynslóð.“

Hvað er nýtt og spennandi að koma inn í vor og sumar?

„Það nýjasta hjá okkur er sniðið 501 Loose, sem er að slá í gegn um þessar mundir. Það virðist vera akkúrat það sem fólk er að leita að í dag, afslappað snið með klassískum 501-grunni. Þetta er buxur sem höfða til allra kynja og hafa fengið frábærar viðtökur. Þá hafa XL Straight-buxurnar einnig verið vinsælar í vetur og halda áfram inn í vor og sumar. Þetta eru mjög þægilegar, víðar buxur sem margir finna sig vel í, og það er sérstaklega gott að þær koma líka í 35 sídd, sem hentar vel fyrir hávaxið fólk. Auk buxnasniðanna er líka mikil þróun í skyrtum og bolum hjá Levi’s um þessar mundir. Þar er áhersla á flott snið, góð efni og almennt meiri fjölbreytni. Það er því klárlega nóg spennandi í gangi og ég mæli með að fólk kíki við og skoði úrvalið í nýju versluninni í Smáralind,“ segir Lilja spennt fyrir nýjum kafla hjá Levi´s á Íslandi.

Nýtt og spennandi

Hér eru nokkrar klassískar flíkur sem smellpassa inn í fataskápinn fyrir sumarið og munu standast tímans tönn og tískustrauma.
Sumarlegt og sætt prjónavesti sem fellur vel að líkamanum. Levi´s, 9.490 kr.
555 Relaxed Straight. Víðar buxur sem koma beinar niður. Mjög þægilegar. Levi´s, 18.990 kr.
Þessi týpa heitir XL Straight. Gallaefnis- og hörblanda. Buxurnar eru mjög mjúkar og falla vel að líkamanum, fullkomnar í sumarfataskápinn.
Sígilda gallaskyrtan frá Levi's. Klikkar aldrei og hægt að nota hana sem hversdagsflík eða sem afslappað lúkk út á lífið. Levi´s, 12.990 kr.
Levi´s, 16.990 kr.
Fallega blá og mjúk hörskyrta sem er frábær viðbót í sumarfataskápinn. Levi´s, 10.990 kr.
501 '90 Levi's. Eitt mest selda sniðið frá Levi´s. Þessar eru úr þunnu gallaefni og henta vel í hita. Levi´s, 18.990 kr.
501 Loose er eitt nýjasta sniðið frá Levi's. Fullkomið fyrir þau sem vilja vídd, en innan hóflegra marka. Mjög vinsælt hjá öllum kynjum. Levi´s, 18.990 kr. Levi´s, 18.990 kr.
Kíktu í nýja og stórglæsilega verslun Levi´s í Smáralind þann 3. júní og nýttu þér góð tilboð.

Meira úr tísku

Tíska

Sjóðheit sólgleraugnatíska sumarið 2026

Tíska

ZARA í samstarfi við stílstjörnuna Leandra Medine

Tíska

Á óskalista stílista úr Kappahl

Tíska

Liturinn sem stal senunni á tískuvikunni í París

Tíska

Steldu stílnum hennar Laufeyjar

Tíska

Parísartískan lent í Smáralind

Tíska

Sparidress fyrir fermingar­mömmur

Tíska

Fermingarfötin 2026