Yfirhafnir með karakter
Góð yfirhöfn getur gert heilmikið fyrir heildarútlitið og í vetur fær hún sannarlega að njóta sín. Síðar ullarkápur, rúmgóðir jakkar og klassískar yfirhafnir í yfirstærð eru áberandi. Hér er leikið með hlutföll og snið, en útkoman er tímalaus og fáguð með hæfilegum skammti af dramatík. Yfirhöfnin er ekki lengur bara praktísk - hún er aðalatriðið.
Rúskinn og leður - lúxus með smá stælum
Rúskinns- og leðurflíkur eru eftirsóttar í haust og vetur og þá sérstaklega í djúpum súkkulaðibrúnum tónum. Rúskinnsjakkar, leðurskyrtur og yfirhafnir gefa jafnvel einföldustu samsetningum ákveðinn karakter. Stíllinn er afslappaður en fágaður og kemur sérlega vel út með víðum gallabuxum, kasmírpeysu eða klassískri hvítri skyrtu.
Víðar buxur - því víðari, því betri
Þröngu buxurnar fá áfram að hvíla sig því víð og afslöppuð snið halda velli. Hvort sem um er að ræða víðar gallabuxur eða klassískar jakkafatabuxur er áherslan á þægindi, falleg snið og áreynslulausan stíl. Paraðu þær við einfaldan bol, stuttan jakka eða vandaða prjónapeysu fyrir lúkk sem hittir beint í mark.
Retró prjónapeysur - nostalgían er allsráðandi
Ímyndaðu þér gamaldags herraklúbb, skíðafrí í Ölpunum og fataskápinn hans afa, en með nútímalegu yfirbragði. Grófar og mynstraðar prjónaflíkur, rúllukragar og hálfrenndar peysur eru meðal lykilflíka vetrarins. Hér mætast nostalgía og nútímalegur stíll á einstaklega heillandi hátt. Því meiri karakter sem peysan hefur, því betra.
Háskólastíllinn heillar
Háskólastíllinn heldur áfram að heilla, en nú með skemmtilegum vintage-blæ. Röndóttir ruðningsbolir, pólópeysur, skyrtur og klassískar prjónapeysur eru að trenda. Leyndarmálið er að blanda þessum fáguðu flíkum við eitthvað óvænt, eins og víðar gallabuxur, leðurjakka eða sportlega strigaskó. Smá nostalgía, smá uppreisn og heilmikill stíll.
Dass af kúrekastíl - íhaa!
Kúrekatískan er hvergi nærri búin að syngja sitt síðasta, en í vetur birtist hún í fágaðri og látlausari útgáfu. Leðurbelti með áberandi sylgjum, kúrekastígvél og oddmjóir leðurskór setja svip sinn á annars klassískar samsetningar. Hér er lykilatriðið að velja einn áberandi fylgihlut eða flík frekar en að klæða sig eins og maður sé á leiðinni á búgarð í Texas.
Retró sportflíkur - íþróttafötin eru sjóðheit
Sportlegar flíkur halda áfram að rata inn í hversdagsfataskápinn, en nú með sterkum nostalgíutónum. Gamaldags æfingajakkar, nylon og íþróttafatnaður sem minnir á níunda og tíunda áratuginn fá nýtt hlutverk. Það sem gerir trendið sérstaklega spennandi er að para sportlegar flíkur við eitthvað klassískt - til dæmis æfingajakka við jakkafatabuxur eða vintage íþróttapeysu undir ullarkápu.
Útkoman er fáguð en áreynslulaus, með hæfilegum skammti af nostalgíu og fullt af persónuleika.