Fara í efni

Haustið í hnotskurn: rúskinn, kúrekaívaf og tímalaus elegans

Tíska - 2. september 2026

Rúskinn, leður, jarðlitir og „western“-áhrif setja tóninn í haust. Við fengum Aldísi Theu Hákonardóttur, markaðsstjóra Föt og Skór, og Helenu Björgu Hafliðadóttur, verslunarstjóra Mathilda í Smáralind, til að segja okkur hvaða trend stóðu upp úr á tískuvikunum í París og Kaupmannahöfn og hvað þær ætla sjálfar að taka með sér inn í haustið.

Aldísi Thea Hákonardóttir, markaðsstjóra Föt og Skór og Helenu Björg Hafliðadóttir, verslunarstjóri Mathilda í Smáralind.

Það er eitthvað við haustið sem gerir það að einum eftirsóttasta árstíma tískunnar. Léttu sumarlögin víkja fyrir fallegum kápum, mjúku prjóni og leðri, og fataskápurinn fær nýtt líf þegar hægt er að fara að leika sér með lög, áferð og fylgihluti á ný.

Aldís og Helena eru nýkomnar heim frá tískuvikum Parísar og Kaupmannahafnar, fullar af innblæstri og með skýra mynd af því hvað verður áberandi næstu mánuðina.

„Hausttískan í ár einkennist mikið af klassískum og tímalausum stíl,“ segja þær. „Við sjáum mikið af fallegum jarðlitum og ákveðnum „western“-áhrifum, en á sama tíma mjög elegant og áreynslulausum stíl.“

Stílstjörnurnar á tískuvikunni í Köben.

Tímalaus fataskápur og persónulegur stíll

Ef eitt orð á að lýsa haustinu er það líklega klassík. Klassík ársins 2026 er þó langt frá því að vera leiðinleg enda snýst þetta aðallega um góð snið, vandaðar flíkur og fyrst og fremst um að setja sitt eigið yfirbragð á stílinn.

„Caroline Bessette-Kennedy og Rachel Green eru til dæmis mikill innblástur fyrir okkur í haust,“ segja þær. „Klassískar flíkur, falleg snið og gott „layering“, með skemmtilegum og áberandi flíkum inn á milli.“

Einmitt þessi blanda virðist vera lykillinn að haustinu. Góðar grunnflíkur mynda traustan grunn en síðan gefst tækifæri til að leika sér með áferð, liti, skó, töskur og skartgripi til að gefa hverju átfitti persónulegan karakter. Klassíkin er grunnurinn en það er persónuleikinn sem gerir stílinn að þínum.

Carolyn Bessette-Kennedy og Jennifer Aniston í hlutverki Rachel Green í Friends eru endalaus uppspretta tískuinnblásturs.

„Layering“ er lykilorðið

Aldís og Helena eru aðdáendur haustsins eins og flestir sem fylgjast með nýjustu tískustraumum og stefnum. Það er hreinlega miklu skemmtilegra að klæða sig á haustin. „Við elskum haustið, þetta er klárlega okkar uppáhalds árstími og við erum alltaf extra spenntar þegar haustvörurnar detta í hús. Það er svo margt flott að koma inn í Mathilda, eins og Polo-jakkarnir og kápurnar. Okkur finnst sjúklega gaman að geta leikið okkur með að „layera“ mismunandi flíkur og setja saman flott haustlúkk.“

Þetta er líka ein einfaldasta leiðin til að uppfæra fataskápinn án þess að endurnýja hann frá grunni. Skyrta undir peysu, kápa yfir leðurjakka eða fallegt belti yfir rúskinnsjakka getur breytt einföldu dressi á augabragði.

Filippa K, Mathilda, 129.990 kr.
Filippa K, Mathilda, 34.990 kr.

Kúrekastíll með fáguðu yfirbragði

„Western“-áhrifin eru ekkert að fara neitt í bráð. Í haust birtast þau hins vegar í fágaðri mynd og frekar í fylgihlutum eða einni flík frekar en að klæðast flíkum í kúrekastíl frá toppi til táar. „Leður og rúskinn koma alltaf aftur á haustin og eru algjör klassík. Svo er líka eitthvað við „fringe“, „western“-áhrif og flottan, áberandi jakka sem passar alltaf svo vel inn í haustið.“ Kúrekastígvélin eru þar augljós leið til að taka trendið inn í fataskápinn, en það þarf ekki að fara alla leið. „Flott kúrekastígvél eru klárlega ein af þeim flíkum sem geta sett punktinn yfir i-ið í haust,“ segja þær. „Einnig er tímalaus og klassísk kápa alltaf góð fjárfesting og flík sem fær mikið notagildi í íslensku veðri.“

Isabel Marant, Mathilda, 199.990 kr.
Polo Ralph Lauren, Mathilda, 269.990 kr.
Leðurbuxur, Mathilda, 199.990 kr.
Mathilda, 89.990 kr.

Rúskinn í sviðsljósinu

Það er sérstaklega rúskinnið sem virðist vera koma sterkt inn í haust. Mjúk áferðin gefur einföldum flíkum lúxuslegt yfirbragð og passar einstaklega vel við litapallettu haustsins.

„Besta fjárfestingin að okkar mati er klárlega „fringe“-leðurjakkinn og rúskinnsbuxurnar frá Polo Ralph Lauren.“ Þær mæla einnig með því að horfa til fylgihlutanna þegar kemur að fjárfestingarflíkum. „Töskurnar frá Isabel Marant eru alltaf tímalausar.“

Það er einmitt þessi hugsun sem einkennir haustið: að velja færri en betri flíkur sem hægt er að nota á marga mismunandi vegu og leyfa þeim að lifa lengur í fataskápnum.

Litir haustsins

Brúnir tónar, djúpir jarðlitir og dökkgrænn eru áberandi og skapa rólegan grunn fyrir fataskápinn. „Við sjáum mikið af brúnum tónum og jarðlitum, ásamt fallegum dökkgrænum tónum. Á móti þessum klassísku litum eru sterkir litir eins og appelsínugulur mjög skemmtilegur til að brjóta upp átfittið og bæta smá lífi og persónuleika við lúkkið.“ Ein litrík skyrta, peysa eða taska getur því verið nóg til að gefa klassísku haustlúkki ferskt yfirbragð.

Mathilda, 39.990 kr.
Polo Ralph Lauren, 36.990 kr.

Nýju nöfnin í fataskápnum

Hjá Mathilda hefur haustið líka í för með sér spennandi nýjungar. Hið goðsagnakennda tískuvörumerki Filippa K er ný viðbót við vörumerkjaflóruna og fellur að þeirra sögn einstaklega vel að þeirri fagurfræði sem verslunin hefur byggt upp. „Filippa K er virkilega falleg viðbót við vörumerkin okkar hjá Mathilda. Merkið passar mjög vel við þau vörumerki sem við erum nú þegar með og býður upp á klassískar og vandaðar flíkur sem hægt er að nota aftur og aftur.“ ba&sh, sem kom nýtt inn í verslunina í vor, er einnig ofarlega á listanum yfir það sem þær eru spenntar fyrir. „Við vorum að taka upp nýja sendingu frá þeim og hún er algjörlega sturluð. Við erum sjúklega spenntar fyrir henni!“

Tískuvörumerkið ba&sh fór í sölu í Mathilda í vor.

Haustið býður upp á tilefni til að klæða sig upp

„Í tilefni afmælis Mathilda í Smáralind þann 3. september viljum við fagna með viðskiptavinum okkar og um leið kynna allar spennandi haustvörurnar sem eru að koma inn.“ Gestir geta því átt von á léttum veitingum, skemmtilegum kaupauka, happdrætti og góðri stemningu.

Og kannski er það einmitt besta leiðin til að fagna nýju tískutímabili: finna sér góða kápu, bæta við smá rúskinni, leyfa kúrekastígvélunum að njóta sín og finna síðan þær ómissandi haustflíkur og fylgihluti sem gerir stílinn að þínum eigin.

Haustið þarf nefnilega ekki að snúast um að fylgja trendunum heldur um að finna þau sem passa þínum persónulega stíl.

Ralph Lauren haust 2026

Hér eru nokkur af okkar uppáhalds frá Ralph Lauren haustið 2026.

Isabel Marant haustið 2026

Rosie Huntington-Whiteley á tískuviku í París í einum af stærstu trendum haustsins, rúskinnspilsi.
Fögnum saman afmæli Mathilda og komu hausttískunnar í verslun Mathilda í Smáralind 3. september frá kl. 14.00!

Meira úr tísku

Tíska

Taktu þessi trend með þér í vinnuna

Tíska

Götutískan í Köben

Tíska

Klassíkin sem klikkar ekki á hátískuviku í París

Tíska

Skandinavískur sumar­innblástur

Tíska

Stærsta Levi´s verslunin á Íslandi frá upphafi opnar í Smáralind

Tíska

Sætustu sumarskórnir

Tíska

Sjóðheit sólgleraugnatíska sumarið 2026

Tíska

ZARA í samstarfi við stílstjörnuna Leandra Medine