Fara í efni

Heitustu tískutrendin í vetur

Tíska - 5. nóvember 2026

Veturinn 2026 er allt annað en látlaus þegar tískan er annars vegar. Dramatískar yfirhafnir, áberandi leðurflíkur, rómantískar blúndur og kraftmikil snið setja tóninn fyrir tímabilið. Mjúkur kvenleiki mætir hráum töffaraskap og klassískar flíkur fá nýtt líf með spennandi áferðum og óvæntum andstæðum. Útkoman er fáguð, djörf og full af persónuleika. Við rýnum í helstu tískustrauma vetrarins.

Löðrandi leðurlúxus

Leðrið heldur áfram að ráða ríkjum, en fær nú djarfara og meira spennandi yfirbragð. Frá stórum leðurjökkum og síðum kápum til þröngra sniða og áberandi smáatriða færi leðrið fataskápnum hæfilegan skammt af rokki, karakter og áreynslulausum töffaraskap.
Zara, 17.995 kr.
Mathilda, 129.990 kr.
Karakter, 69.995 kr.
Zara, 8.995 kr.
Vila, 12.990 kr.
Gina Tricot, 12.995 kr.
Weekday, Smáralind.
Leðurflíkur í haustlitunum halda velli en við munum líka sjá sterka liti eins og þann rauða, sem verður vinsæll í vetur.

Áberandi yfirhafnir og gervifeldir

Meira er meira þegar kemur að yfirhöfnum vetrarins. Fyrirferðarmiklir gervifeldir, dramatísk snið og áberandi áferðir (og mynstur) stela senunni og gera jafnvel einfaldasta klæðnað spennandi.
Teddy kápurnar halda áfram að vera sjóðheitar eins og sést hér á Tamöru Kalinic.
Dýramynstur fær að njóta sín á óhefbundinn hátt með litasamsetningum sem vekja athygli.
Mathilda, 49.990 kr.
Zara, 31.995 kr.
Gina Tricot, 16.195 kr.
Karakter, 49.995 kr.
Mathilda, 49.990 kr.
Selected, 21.990 kr.
Zara, 15.995 kr.
Mathilda, 179.990 kr.
Fyrirsætan Elsa Hosk baksviðs hjá Khaite í hlébarðakápu sem við erum sjúkar í!

Valdeflandi vinnustíll

Skarpar axlir, áberandi snið og vel sniðnar dragtir færa tísku níunda áratugarins aftur í sviðsljósið. Þessi valdeflandi stíll snýst um að taka pláss, sýna sjálfstraust og láta klæðnaðinn tala sínu máli – með nútímalegu og fáguðu yfirbragði.
Zara, 15.995/8.995 kr.
Zara, 15.995 kr.
Mango, Smáralind.
Vero Moda, 15.990 kr.
Weekday, Smáralind.
Karakter, 29.995 kr.
Buxur, Emporio Armani, Mathilda, 79.990 kr.
Vero Moda, 15.990 kr.
Lindex, 10.990 kr.
Hugo, Mathilda, 44.990 kr.
Pils, Zara, 7.995 kr.

Rokk og rómantík

Rómantíkin fær nýtt og ögn djarfara yfirbragð. Fínlegar blúndur, pífur og gegnsæ efni mæta leðri, grófum stígvélum og óvæntum andstæðum. Útkoman er kvenleg, en langt frá því að vera saklaus.
Karakter, 18.995 kr.
Zara, 13.995 kr.
Pils, Karakter, 12.995 kr.
Vero Moda, 11.990 kr.
Mango, Smáralind.
Selected, 21.990 kr.
Zara, 13.995 kr.
Mathilda, 29.990 kr.
Blúndur verða paraðar við leður og rokk og rómantík verður kombó vetrarins eins og sést hér hjá tískuhúsinu Khaite.
Dramatískar yfirhafnir, áberandi leðurflíkur, rómantískar blúndur og kraftmikil snið setja tóninn fyrir tímabilið. Mjúkur kvenleiki mætir hráum töffaraskap og klassískar flíkur fá nýtt líf með spennandi áferðum og óvæntum andstæðum. Útkoman er fáguð, djörf og full af persónuleika.

Meira úr tísku

Tíska

Herratískan veturinn 2026

Tíska

Aldamótatískan snýr aftur

Tíska

Stílisti velur nýtt í fataskápinn á bleikri Miðnæturopnun

Tíska

Haustið í hnotskurn: rúskinn, kúrekaívaf og tímalaus elegans

Tíska

Taktu þessi trend með þér í vinnuna

Tíska

Götutískan í Köben

Tíska

Klassíkin sem klikkar ekki á hátískuviku í París

Tíska

Skandinavískur sumar­innblástur