Flottur jakki
Góður jakki er einn mesti vinnuþjarkurinn í fataskápnum og nú er heldur betur rétti tíminn til að fjárfesta í einum góðum. Á Bleikri Miðnætuopnun bjóða margar verslanir 20% afslátt og allskyns góð tilboð í gangi, svo það er um að gera að finna jakkann sem þú munt nota aftur og aftur.
Sætir skór
Mokkasínur í svörtu eða brúnu og klassísk leðurstígvél eru góð fjárfesting fyrir haustið. Og þegar veturinn færist nær er ekki síður mikilvægt að eiga góða skó sem þola íslenska slabbið!
Djúsí peysa
Nú þegar kólnar í veðri langar okkur helst ekki að klæðast neinu öðru en hlýjum og djúsí peysum. Hér eru nokkrar sætar sem við værum meira en til í að klæðast í haust.
Geggjaðar gallabuxur
Góðar gallabuxur eru gulls ígildi. Beina sniðið í næntís anda er sjóðheitt en víðu gallabuxurnar halda svo sannarlega ennþá velli. Hér eru nokkrar sem við værum til í að bæta í fataskápinn.
Trendið
Þótt klassíkin sé alltaf góð fjárfesting er líka gaman að leyfa nýjustu trendunum að lauma sér inn í fataskápinn. Sebramynstur er áberandi í haust og fullkomin leið til að brjóta upp einfalt lúkk, leika sér með mynstur og gefa átfittinu smá auka karakter.
Flottir fylgihlutir
Það má aldrei vanmeta góða fylgihluti. Þeir setja punktinn yfir i-ið og lyfta jafnvel einfaldasta dressi upp á næsta stig.
Bleika slaufan 2026
Bleika slaufan er að sjálfsögðu fallegasti fylgihluturinn og um leið sá sem skiptir mestu máli. Á Bleikri miðnætuopnun verður Krabbameinsfélagið með Bleiku búðina í Smáralind þar sem hægt verður að kaupa Bleiku slaufuna ásamt öðrum varningi og leggja þannig mikilvægu málefni lið. Bleika slaufan er tákn samstöðu, stuðnings og vonar fyrir þau sem greinst hafa með krabbamein og fólkið sem stendur þeim nærri. Við hvetjum því öll til að næla sér í slaufu og bera hana með stolti.
Sjáumst í Smáralind á bleikri Miðnæturopnun þann 1. október!