Fara í efni

Aldamótatískan snýr aftur

Tíska - 14. október 2026

Smáralind fagnaði nýverið 25 ára afmæli sínu og af því tilefni fannst okkur tilvalið að rifja upp tískuna í kringum aldamótin. Eins og við vitum gengur tískan í hringi og margt af því sem þótti sjóðheitt þá er aftur komið í sviðsljósið. Við förum því í smá nostalgíuferðalag og skoðum tískustraumana sem hafa ratað aftur í fataskápana okkar.

Gallaefni frá toppi til táar

Britney Spears og Justin Timberlake voru heitasta parið um aldamótin og þegar þau mættu á American Music Awards, í byrjun árs 2001, í gallafötum frá toppi til táar varð til eitt ógleymanlegasta tískuaugnablik poppsögunnar sem smitaðist heldur betur út í tískuheiminn. Því meira gallaefni, því betra!
Britney og Justin á AMA´s árið 2001.

Denim on denim í dag

Og viti menn, denim on denim er aftur komið á fullt! Gallaföt frá toppi til táar voru áberandi hjá stílstjörnunum í götutískunni á nýafstöðnum tískuvikum og sanna að þetta aldamótatrend á enn fullt erindi í fataskápinn.
Levi´s, 20.990 kr.
Levi´s, 20.990 kr.
Buxur úr Weekday sem minna á J-Lo í kringum aldamótin.
Gallataska, Zara, 5.995 kr.

Cargobuxur

Það áttu allir og amma þeirra að minnsta kosti einar cargobuxur í fataskápnum um aldamótin og ekki var verra ef þær voru í hermannamynstri. Nú hafa þessar vasaprýddu buxur enn á ný ratað í sviðsljósið og fengið fágaða uppfærslu í takt við tíðarandann. Nostalgíufílingurinn er þó enn á sínum stað!
Buxur, Zara, 7.995 kr.

Djammtoppar

Hver man ekki eftir þeim tíma þegar það þótti nánast nauðsynlegt að fjárfesta í nýjum „djammtopp“ fyrir hverja helgi? Helst glitrandi, með hlýrum eða beru baki, paraður við lágar gallabuxur, litríka hæla og pínulitla handtösku. Svo var glossinum skellt á, ilmvatnsskýið lá yfir öllu og haldið af stað á djammið með Destiny’s Child á hæsta styrk. Ahh, þessir dýrðlegu aldamótatímar! Og nú eru þessir nostalgísku djammtoppar enn á ný komnir í sviðsljósið, bæði hjá stílstjörnunum og á fataslánum í verslunum. Glimmer, blúndur, hlýrar og ber bök, aldamótin hafa sjaldan verið jafn móðins!
Mathilda, 54.990 kr.
Vero Moda, 5.990 kr.
Zara, 6.995 kr.

Litagleði

Skærir litir eru aftur að ryðja sér til rúms og óvæntar litasamsetningar minna óneitanlega á litagleði aldamótanna. Bleikur við rauðan, límónugrænn við fjólubláan og því djarfara, því betra! Nú er um að gera að sleppa fram af sér beislinu og leyfa litunum að leika lausum hala. Túrkísblár og skærbleikur voru óneitanlega stjörnurnar í kringum aldamótin og við erum farin að sjá meira af í dag en áður.
Skærbleikur og hælar í lit minna okkur á aldamótatískuna.
Þessi tískudíva á götum Parísarborgar á tískuviku minnir óneitanlega á tískuna í kringum aldamótin.

Juicy Couture var eitt heitasta fatamerkið í kringum aldamótin og er heldur betur að slá í gegn á ný. Juicy Couture-vörurnar fást í Galleri 17 í Smáralind.

Paris Hilton gerði Juicy Couture ódauðlegt í kringum aldamótin. Galleri 17, 20.995 kr.
Hvað er meira aldamóta en Juicy-bolur skreyttur semalíusteinum? Galleri 17, 7.995 kr.
Zara, 4.595 kr.
Þykk belti yfir gallabuxur, pils og kjóla var aðalmálið í kringum aldamótin. Þetta belti, sem fæst í Mango í Smáralind, öskrar aldamótatíska!
Paris Hilton og Kim K elskuðu Juicy Couture-gallana!

Ugg´s stígvélin hafa heldur betur slegið í gegn síðustu árin en þau voru mál málanna í kringum aldamótin og hver einasta Hollywood-stjarna klæddist þeim.

GS Skór, 49.995 kr.

Tíska dagsins með aldamótaívafi

Hér má sjá svipmyndir af götutískunni á nýafstaðinni tískuviku í París, þar sem ýmislegt vakti ljúfar minningar um stílinn í kringum 2000. Það er greinilegt að aldamótatískan á enn fullt erindi í fataskápinn!
Paddington-taskan frá Chloé var ein eftirsóttasta „It-taska“ áratugarins þegar hún kom á markað árið 2005. Fyrstu 8.000 eintökin seldust áður en hún rataði í verslanir og nú, rúmum 20 árum síðar, er þessi goðsagnakennda taska mætt aftur í sviðsljósið!
Þessi stílstjarna er eins og klippt út úr aldamótatískunni.
Allskyns flíkur með loði voru að trenda, þá eins og nú.
Hversu mikil nostalgía?
Útvíðar buxur í anda aldamótanna.
2000-stíllinn.
Alexa Chung hefði getað rokkað þetta átfitt í kringum aldamótin.
Hlébarða og dýramynstur voru heit í kringum aldamótin, eins og núna.
Lágar buxur og leður, skothelt kombó!
Lógóbolir - þá og nú!
Útvíðar buxur, litaðir hælar og litlar töskur - svooo aldamóta!
Mjög aldamóta.
Við höfum séð þetta áður - fyrir sirka 25 árum síðan!
Balenciaga City-taskan kom fyrst á markað árið 2001, hönnuð af Nicolas Ghesquière. Hún hét upphaflega Motorcycle Bag og varð fljótt ein eftirsóttasta taska aldamótanna, ekki síst eftir að Kate Moss, Mary-Kate og Ashley Olsen og fleiri stílstjörnur tóku ástfóstri við hana. Hér er góð eftirlíking úr Gina Tricot, 9.195 kr.
Loðpeysa úr Mango.
Gina Tricot, 7.395 kr.
Vila, 5.390 kr.
Sebrabuxur úr Mango, Smáralind.
Gina Tricot, 9.195 kr.
Tískan, tónlistin og vörurnar sem voru hvað vinsælastar í kringum aldamótin, þegar Smáralind opnaði dyr sínar fyrst, eru til sýnir á göngum Smáralindar út október. Sjáumst í nostalgíugír!

Meira úr tísku

Tíska

Stílisti velur nýtt í fataskápinn á bleikri Miðnæturopnun

Tíska

Haustið í hnotskurn: rúskinn, kúrekaívaf og tímalaus elegans

Tíska

Taktu þessi trend með þér í vinnuna

Tíska

Götutískan í Köben

Tíska

Klassíkin sem klikkar ekki á hátískuviku í París

Tíska

Skandinavískur sumar­innblástur

Tíska

Stærsta Levi´s verslunin á Íslandi frá upphafi opnar í Smáralind

Tíska

Sætustu sumarskórnir