Jakkinn
Jakkinn er lykilatriðið í vinnufataskápnum í haust. Oversized blazerinn er enn í fullu gildi en við sjáum líka meira af kvenlegum, aðsniðnum jökkum sem fara einstaklega vel með aðsniðnum pilsum og skapa elegant og retró vinnulúkk.
Pils
Aðsniðin pils, pilsadragtir og flæðandi síð pils eru meðal heitustu trendanna um þessar mundir. Ef þig langar að fríska upp á fataskápinn fyrir haustið er því kannski kominn tími til að taka fram pilsin sem hafa fengið að bíða í fataskápnum, eða fjárfesta í einu nýju sem fær að njóta sín í sviðsljósinu.
Punkurinn yfir i-ið
Ef þú þarft að nota gleraugu eru þau fullkomin leið til að setja punktinn yfir vinnulúkkið. Hér eru nokkur sem gera okkur extra spenntar fyrir haustinu.
Vinnutaska
Góð vinnutaska er algjört möst en hún þarf að rúma fartölvuna, símann og glossið á sama tíma og hún er smart og stílhrein og gengur við allt í fataskápnum.
„Öðruvísi buxur“
Svokallaðar capri-buxur eða kvartbuxur, cargobuxur og víðar buxur í sportlegum stíl eru góð leið til að krydda aðeins vinnufataskápinn.
Innblástur
Stílstjörnurnar á tískuvikum meginlandsins gáfu okkur hellings innblástur fyrir komandi haust.
Ilmur af hausti
Þegar haustið ber að garði veljum við ilminn í stíl við fallandi lauf og kósíheit. Hér eru nokkrir sem við mælum með fyrir þennan árstíma.