66°Norður x Laufey
„Laufeyju er margt til listanna lagt en hún er ekki bara söngkona heldur einnig tónskáld, upptökustjóri, spilar á ótal hljóðfæri og nýverið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi. Laufey ólst upp við klæðast 66°Norður á leikvöllum landsins og gerir enn í dag. Það var því afar skemmtilegt að vinna að samstarfslínu með henni og tvíburasystur hennar, Júníu,“ segir á vef 66°Norður. „Þegar ég hugsa tilbaka um uppvaxtarárin mín á Íslandi rifjast upp þegar ég gekk í skólann eða í tónlistartíma í alls konar veðri, en alltaf vel varin í flíkum frá 66°Norður. Það eru því sannkölluð forréttindi að fá að hanna og gefa út línu í samstarfi við eitt framsæknasta og fremsta fyrirtæki landsins,“ segir Laufey.
Línan var þróuð í nánu samstarfi með Laufeyju og tvíburasystur hennar og listrænum stjórnanda, Júníu. Línan samanstendur af fimm vörum sem henta vel í hversdagslega notkun, þar sem að stíll Laufeyjar skín í gegn.