Hugmyndin er einföld: það er frábært að ná árangri sjálfur, en enn betra þegar maður getur líka fagnað árangri annarra og hvatt fólkið í kringum sig til að ná lengra.
BOSS Bottled Beyond for Her
Ef þú fílar kvenlega ilmi sem eru blómlegir en ekki of léttir gæti BOSS Bottled Beyond for Her verið góður kostur. Ilmurinn byggist fyrst og fremst á bóndarós og sætum hlynsírópstónum, sem gefa honum bæði ferskleika og hlýju.
Bóndarósin kemur fyrst fram og gefur ilminum bjartan og blómlegan karakter. Síðan bætist sætari og hlýrri tónn við, með ambertónum sem gera ilminn mýkri og dýpri.
Útkoman er kvenlegur, hlýr og frekar sætur ilmur, en samt með ferskleika sem heldur honum léttum. Hann hentar því vel fyrir þær sem vilja ilm sem er áberandi en ekki yfirþyrmandi.
BOSS Bottled Beyone for Him
BOSS Bottled Beyond for Him er fyrir þá sem vilja fágaðan ilm með smá krafti í sér. Hér eru það sérstaklega engifer og leður sem skapa karakterinn.
Engiferið gefur ilminum ferskan og örlítið kryddaðan tón sem gerir hann lifandi og nútímalegan. Leðrið kemur síðan inn með hlýrri og dýpri tónum og gefur ilminum meiri þyngd.
Þetta er því ekki of sætur eða þungur ilmur heldur ferskur, hlýr og karlmannlegur ilmur með ákveðna nærveru. Góður fyrir mann sem vill ilm sem finnst þegar hann kemur inn í herbergið, en tekur ekki allt plássið.
Fyrir hann. Fyrir hana. Beyond
Sjáumst á Tax Free-dögum í Hagkaup í Smáralind!