Fara í efni

Förðunarfræðingur gefur ráð um húðumhirðu og förðun á fermingardaginn

Fegurð - 17. mars 2026

Lilja Björg Gísladóttir förðunarfræðingur gefur fermingarbörnum og foreldrum þeirra góð ráð þegar kemur að húðumhirðu og förðun á fermingardaginn.

Lilja Björg Gísladóttir, sérfræðingur markaðsmála hjá Hagkaup og sjálfstætt starfandi förðunarfræðingur.
Fermingarförðunin er yfirleitt nokkuð klassísk og undirstrikar náttúrulega fegurð fermingarbarnsins.

Mildar húðvörur og einföld rútína

„Ég myndi segja að það væri mikilvægast að hafa rútínuna einfalda og nota mildar vörur. Fyrir flesta ætti að duga að skola húðina vel og nota mildan hreinsi, rakakrem og sólarvörn. Svo ef viðkomandi er að díla við mikið af bólum eða mjög olíukennda húð þá er hægt að aðlaða rútínuna að því,“ segir Lilja. „Svo mæli ég alltaf mæla með því að skola húðina með þvottapoka og volgu vatni á morgnana og bera á hana rakakrem og sólarvörn eða rakakrem með sólarvörn. Á kvöldin er svo mikilvægt að þrífa húðina með mildum og rakagefandi hreinsi og nota gott rakakrem.“

Ég er mjög hrifin af vörunum frá CeraVe og hef notað þær mikið. Græni Hydrating Cleanser hreinsirinn er til dæmis frábær til þess að hreinsa bæði förðun og önnur óhreinindi af húðinni. 
Andlitshreinsir frá Cerave, Hagkaup, 2.699 kr.
Ef barnið er með bólur eða olíukennda húð getur verið í lagi að nota Blemish Control Cleanser en ég mæli með að gera það sparlega á móti græna hreinsinum. Svo er alltaf hægt að ráðfæra sig við sérfræðinga í verslunum Hagkaups eða senda okkur skilaboð á samfélagsmiðlum, við erum alltaf tilbúin til þess að aðstoða við val á réttum húðvörum. 
Andlitshreinsir frá Cerave, Hagkaup, 3.399 kr.

Hvað varðar rakakrem þá er CeraVe PM Facial Moisturising Lotion algjört æði fyrir kvöldið, eða fyrir þau sem vilja ekki nota krem með sólarvörn og Facial Moisturising Lotion SPF50 á morgnanna. Í grunninn mjög svipuð krem, létt og næringarrík og styrkja varnarlag húðarinnar og gefa henni mikinn og góðan raka.

CeraVe PM Facial Moisturising Lotion, Hagkaup, 3.499 kr.
Facial Moisturising Lotion SPF50, Hagkaup, 3.999 kr.

Fermingarförðunin

„Varðandi fermingarförðun eru í rauninni minni reglur, förðun er í grunninn listform og við ættum að geta farðað okkur eins og okkur finnst fallegt. Það sem mér finnst samt mikilvægt að nefna er að "Little goes a long way" það þarf ekki alltaf að nota brjálæðislega mikið af vörum og mikið af hverri vöru fyrir sig. Ég er mjög hrifin af léttum og náttúrulegum förðunum fyrir fermingarnar en svo er alltaf hægt að aðlaga það stíl hvers og eins. Annað mikilvægt er að það skiptir öllu máli að vera með hreina húð og hreina bursta áður en við hefjumst handa við að farða okkur. Förðunin verður alltaf fallegri og endingabetri og við minnkum líkurnar á því að stífla húðina ef við pössum upp á hreinlæti.“ 

Lilja mælir með

Fit Me Nude BB Cream - Létt BB krem sem gefur náttúrulega þekju og ljómandi og fallega áferð. Hagkaup, 2.299 kr.
Superstay 24H Skin Tint Foundation - farði sem gefur náttúrulegan og fallegan ljóma en meiri þekju en BB kremið. Hagkaup, 3.299 kr.
Grippy Serum Primer - Vatnskenndur serum-primer sem gefur góðan raka og „grípur“ förðunina vel og hjálpar til við að láta hana endast lengi. Hagkaup, 3.299 kr.
Lumi Glotion Highlighter - Fallegt ljómakrem sem er hægt að nota eitt og sér eða sem grunn á hæstu punkta andlitsins til þess að fá extra ljóma. Virkilega falleg og létt vara. Hagkaup, 2.899 kr.
Fallegt er að nota ljómandi farðagrunn eða highlighter efst á kinnbeinin og niður nefið, það gefur förðuninni eitthvað extra.
Lifter Stix Multi Use Face Stick - Farðastifti, en ég nota dekkri litina til þess að fá fallega náttúrulega hlýju á andlitið, eins og kremkennt sólarpúður. Hagkaup, 3.199 kr.
Fat Cheeks Blush - Fljótandi kinnalitir sem gefa fallegan lit og ljóma á kinnarnar. Náttúruleg áferð og auðvelt að blanda út, mjög þægileg vara að vinna með. Hagkaup, 2.495 kr.
Wonder Snatch Powder - Setting púður til þess að matta þau svæði sem við viljum matta og til þess að setja farða og hyljara á sína staði. Hagkaup, 2.595 kr.
Buttermelt Bronzer - Algjört neglu sólarpúður sem gefur sólkysstan lit og bráðnar mjög fallega við förðunina. Hagkaup, 2.895 kr.
Lash Sensational Sky High Mascara - Þennan þarf varla að kynna, einn sá vinsælasti! Mjög góður maskari og auðvelt að stjórna þvi hversu mikið maður notar af honum. Hægt að nota lítið og fá náttúruleg augnhár en með fleiri umferðum er hægt að ná fram meira drama. Hagkaup, 2.999 kr.
Ultimate Glow Shots - Fallegir fljótnandi augnskuggar með fallegum ljóma. Ég nota yfirleitt sólarpúður, smá brúnan blýant í augnhárarótina og þessa fallegu skugga á augnlokin þegar ég farða fyrir fermingar. Einfalt, fallegt en auðvelt að ýkja með smá meiri brúnum augnskugga. Grape fruit og goldengoji eru mínir uppáhaldslitir. Hagkaup, 2.295 kr.
Slim Eye Pencil - Þessi blýantur í Black brown eða medium brown er algjör snilld til þess að ramma augun örlítið betur inn án þess að vera með mjög afgerandi eyeliner. Ég nota þessa blýanta mjög mikið í allar farðanir, hvort sem er fyrir fermingar eða önnur tilefni, mjög góðir og gott úrval af litum. Hagkaup, 1.295 kr.
Superfluff Brow Mousse - Augabrúnagel með lit, nota það til þess að móta augabrúnirnar og gefa þeim smá lit. Hagkaup, 2.899 kr.
Notaðu glansandi augnskugga létt á augnlokin og innri augnkrók fyrir töfrandi augnumgjörð.
Slim Lip Pencil - Þessir varablýantar eru í miklu uppáhaldi hjá mér og ég á þá í allskonar litum og nota mikið sjálf! Ég mæli oft með þeim fyrir viðskiptavini sem koma í förðun hjá mér til þess að eiga og bæta á yfir daginn. Litir sem eru í miklu uppáhaldi fyrir fermingarnar eru t.d. Peekaboo Neutral og Natural. Hagkaup, 1.295 kr.
Lifter Gloss - Glossinn sem gefur vörunum næringu og gullfallegan ljóma! Margir fallegir litir og það er eins með þessa og varablýantana ég nota þá mjög mikið! Moon, Petal og Ice eru meðal þeirra sem ég gríp oftast í! Hagkaup, 2.299 kr.
Lilja mælir með Real Techniques-burstasettunum en þau eru á mjög góðu verði og fást í Hagkaup.

Er fermingarförðunin alltaf klassísk eða sérðu einhver förðunar- eða litatrend í gangi núna fyrir vorið?

„Yfirleitt er hún nokkuð klassísk, kannski nokkrir hlutir sem breytast með trendum eins og staðsetning eða litur á kinnalit, varir og hvort það er í tísku að vera með matta áferð eða ljómandi. Yfirleitt eru þetta nokkuð léttar og fallegar farðanir sem eru frekar tímalausar, þar sem myndir frá fermingardeginum eru jú myndir sem eru gjarnan dregnar fram þegar við verðum eldri. En eins og ég segi þá er förðun listform og það er sannarlega í góðu lagi að tjá sig að einhverju leiti í gegnum hana og finna sinn persónulega stíl, það er það skemmtilega við förðunina að við þurfum ekki öll að vera eins,“ segir Lilja að lokum.

Kremaðir kinnalitir hafa verið vinsælir upp á síðkastið en þeir gefa fallegan lit og náttúrulega áferð á húðina.

Meira úr fegurð

Fegurð

Snyrtivörurnar sem Laufey notaði á Grammy verðlauna­hátíðinni

Fegurð

Nýjar og spennandi snyrtivörur á Tax Free

Fegurð

ChitoCare á Tax Free

Fegurð

Nýr Kylie Jenner ilmur

Fegurð

Nýtt og spennandi á Tax Free

Fegurð

Heitast í hári haustið 2025

Fegurð

Spennandi ilmir frá Gucci, Burberry og Marc Jacobs

Fegurð

Nýr Boss ilmur slær í gegn