Fara í efni

Nýir förðunarburstar frá Hörpu Kára komnir í verslanir

Fegurð - 23. september 2026

Góð förðun stendur og fellur með verkfærunum og nú er komin ný íslensk burstalína í verslanir sem vert er að kynna sér. By Harpa Kára er lína af mjúkum og vönduðum förðunarburstum, þróuð af förðunarfræðingnum Hörpu Káradóttur, sem hefur getið sér gott orð í faginu á síðustu tveimur áratugum. Burstarnir eru hannaðir fyrir öll, hvort sem þú ert að taka þín fyrstu skref í förðun eða kannt vel til verka.

Á bak við By Harpa Kára stendur Harpa Káradóttir, förðunarfræðingur og eigandi Makeup Studio, sem hefur starfað í förðunargeiranum í tvo áratugi. Á ferlinum hefur Harpa meðal annars sérhæft sig í förðunarkennslu og lagt mikla áherslu á fagmennsku, nákvæmni og persónulega nálgun. Þessi mikla reynsla og ástríða fyrir faginu skilar sér nú í By Harpa Kára förðunarburstunum, línu sem er hugsuð fyrir öll sem vilja góð og vönduð verkfæri í snyrtibudduna.

Verkfærin eru grunnurinn að góðri förðun

Það skiptir máli hvaða verkfæri eru notuð þegar kemur að förðun. Rétti burstinn getur auðveldað ásetningu, hjálpað til við blöndun og skipt sköpum þegar kemur að lokaáferðinni.
By Harpa Kára burstarnir eru úr vegan hárum og eru einstaklega mjúkir og þægilegir í notkun. Línan samanstendur af fjölbreyttu úrvali bursta fyrir bæði andlit og augu, allt frá fíngerðum nákvæmnisburstum yfir í mjúka púður- og farðabursta.
By Harpa Kára burstasettin fást í Hagkaup, Smáralind.

By Harpa Kára settin

Eye Set inniheldur úrval bursta fyrir augnförðun, frá nákvæmnisvinnu yfir í blöndun og augnskugga.
Face Set sameinar lykilbursta fyrir húðina, meðal annars fyrir hyljara, skyggingar, farða og púður.
Í Luxe Face Set má síðan finna úrval andlitsbursta ásamt farðasvampi og þríhyrndum púðrara, sett fyrir þau sem vilja hafa fjölhæf verkfæri við höndina þegar kemur að grunnförðun.
All Set inniheldur púðrara og farðasvamp.

Förðun sem vinnur með þér

Hugmyndafræðin á bak við By Harpa Kára snýst ekki aðeins um verkfærin heldur líka nálgunina á förðun. Fyrir Hörpu snýst góð förðun um að draga fram það sem gerir okkur sérstök og leyfa hverjum og einum að finna sína eigin leið. Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í förðun eða hefur árum saman átt fullt burstasafn er markmiðið það sama: góð verkfæri sem hjálpa þér að skapa þá förðun sem þér líður best með.
Kynntu þér nýju förðunarburstana frá Hörpu Kára í Hagkaup!

Meira úr fegurð

Fegurð

Þetta kaupa skvísurnar á skrifstofunni aftur og aftur á Tax Free

Fegurð

BOSS Bottled Beyond: Tveir nýir ilmir með karakter

Fegurð

Nýi Gucci ilmurinn er fyrir konuna sem þorir að dreyma stórt

Fegurð

Spennandi snyrtivörur á Tax free - meðal annars geggjað litað dagkrem á 1.611 kr!

Fegurð

Við myndum kaupa þessar vörur á 25% afslætti hjá Lyfju

Fegurð

Nýjar og spennandi snyrtivörur á Tax Free

Fegurð

Nýir sumarilmir á Tax Free

Fegurð

Förðunar­fræðingur gefur ráð um húðumhirðu og förðun á fermingar­daginn