Fara í efni

Nýir sumarilmir á Tax Free

Fegurð - 15. maí 2026

Nýjustu sumarilmirnir eru mættir í verslanir Hagkaups í Smáralind og tilvalið að grípa gæsina á meðan að Risa Tax Free dagar standa yfir. Í snyrtivörudeildinni má nú finna ferska ilmi sem fanga allt það sem við elskum við sumarið: safaríka ávexti, mjúk blóm og hlýja vanillutóna sem liggja eins og létt sólskin á húðinni. Hér eru ilmir sem virka jafnt á daginn sem og á kvöldin og eru fullkomnir í ferðalagið, borgarstemninguna eða einfaldlega á sólríkum sumardögum.

La Bomba Eau de Parfum heillaði okkur við fyrstu kynni. Hann sameinar safaríkan ávaxtakeim, blómarós og hlýja vanillu í ávanabindandi og kvenlega blöndu. La Bomba skilur eftir sig hlýjan og eftirminnilegan vanillukeim sem endist vel á húðinni fram á rauða nótt. Mælum með! Hagkaup, 12.499 kr.
My Way Sunny Vanilla Eau de Parfum frá Armani er hinn fullkomni sumarilmur að okkar mati. Byggir á vinsælum grunni og sameinar safaríkan ananas, kremkenndan blómailm og hlýja vanillu sem er akkúrat það sem við leitum í á þessum árstíma. Hagkaup, 13.999 kr.
Daisy Wild Eau So Extra Eau de Parfum er leikandi og óvæntur blóma-, ávaxta- og sætuilmur sem blandar saman mjúkum banana- og perukeim með dásamlegum súkkulaðiblóma-innblæstri. Ilmurinn opnast á safaríkum og björtum ávöxtum, þróast yfir í rjómakennt hjarta af jasmín, appelsínublómi og súkkulaði, og endar í hlýjum grunni af vanillu, sandalvið og vetiver. Niðurstaðan er unglegur, skapandi og svolítið nostalgískur "gúrmei"-ilmur. Hagkaup, 20.999 kr.
Boss Alive Sparkling Lavender er hlýr og fágaður ilmur með ferskum ávaxtatónum, mjúkum lavender-blómakeim og viðarkenndum grunni. Ilmurinn sameinar epli, sólber og plómu með jasmín, timían og sandalvið. Fullkominn bæði dagsdaglega og fyrir sérstök tilefni enda mjúkur, kvenlegur og örlítið dularfullur. Hagkaup, 18.499 kr.
Valentino Donna Born in Roma Intense er hlýr og seiðandi blómailmur sem sameinar safaríka plómu, mjúka jasmín og kremkennda vanillu í djúpa og kvenlega blöndu. Ilmurinn opnast á ávaxtaríkum ferskleika, þróast yfir í rómantískt blómahjarta og endar í hlýjum, rjómalögðum vanillukeim sem gefur honum nostalgíska og elegant áferð. Ríkulegur, nútímalegur og fullkominn fyrir konur sem vilja ilm með karakter og dýpt. Hagkaup, 20.499 kr.
Libre Berry Crush Eau de Parfum er ferskur og kvenlegur blóma- og ávaxtailmur sem sameinar safaríka hindberja- og mandarínubyrjun með klassískum Libre-blæ. Í hjartanu blandast lavender og appelsínublóm saman í arómatískan og elegant blómakeim, á meðan grunnurinn með bourbon vanillu, musk og mjúkum kókos gefur hlýjan, rjómakenndan og ávanabindandi endi. Niðurstaðan er lífleg, nútímaleg og kvenleg útgáfa af Libre, þar sem ávextir og blóm mætast í mjúku jafnvægi. Hagkaup, 20.199 kr.
Nýjasta viðbótin í La Vie Est Belle fjölskylduna frá Lancôme er Vanille Nude Eau de Parfum sem er mjúkur og fágaður vanilluilmur með hlýjum, rjómakenndum og örlítið muskí undirblæ. Ilmurinn opnast á jasmín og þróast yfir í kremkennda bourbon vanillu og endar í silkimjúkum grunni af hvítum musk og sandalvið. Hugsanlega uppáhalds La Vie Est Belle-ilmurinn okkar! Hagkaup, 18.899 kr.
Aqua Allegoria Perle Rosa Rossa Eau de Parfum sameinar ilm og húðvöru á einstaklega fallegan hátt. Léttur, ferskur og kvenlegur ilmur þar sem safarík rós og bjartur ávaxtakeimur mætast í sumarlegrum og elegant tón. Ilmurinn er bæði mjúkur og nútímalegur – sannarlega einstakur og ómótstæðilegur. Perluáferðin gefur húðinni fallegan ljóma á meðan ilmurinn leggst yfir eins og létt, silkimjúk slæða sem endist og faðmar húðina á fágaðan hátt. Fæst í Hagkaup, Smáralind.
Svokallaðir hárilmir hafa slegið í gegn að undanförnu og þeir frá Balmain eru á öðru leveli góðir, uppáhaldið okkar er Ginger sem gefur þér fágaðan ilm sem fylgir þér allan daginn! Hagkaup, 21.990 kr.
Lancaster kom með þrjú sumarleg ilmsprey á markað sem hægt er að nota jafnt á líkamann sem og í hárið. Uppáhaldið okkar í línunni er kósosilmurinn sem öskrar sumar og sól! Hagkaup, 6.299 kr.
CK One Night Essence-ilmurinn fangar rafmagnaða umbreytingu dags í nótt. Flauelsmjúk íris blandast ríkulegu amber, hlýju patchouli og þremur heillandi musk nótum. Ný túlkun á seiðandi ilm frá Calvin Klein. Hagkaup, 10.499 kr.
MYSLF L’Absolu Eau de Parfum frá YSL er ferskur og kraftmikill herrailmur sem sameinar kryddaða orku og blómlega mýkt. Ilmurinn opnast á líflegri blöndu af engifer, bergamot og kardimommu, fær síðan hlýtt hjarta af appelsínublómi og mjúkum blómakeim, og endar á jarðbundnum patchouli-grunni sem gefur honum dýpt og karakter. Hagkaup, 19.999 kr.
Emporio Armani Stronger With You Powerfully er hlýr, sætur og örlítið kryddaður herrailmur sem byggir á ríkulegu "gúrmei" hjarta. Ilmurinn opnast á safaríkri kirsuberja- og mandarínublöndu, fær svo dýpt frá lavender og kryddum, og endar í notalegum grunni af kastaníu, vanillu og amberviði. Útkoman er mjúkur, seiðandi og umvefjandi ilmur sem hentar sérstaklega vel á kvöldin. Hagkaup, 17.499 kr.
Boss Bottled Striking Lavender er ferskur og fágaður herrailmur sem blandar saman köldum tónum, lavender og hlýjum viðarkeim. Ilmurinn er hreinn, nútímalegur og karlmannlegur með elegant yfirbragði sem hentar fullkomlega dagsdaglega. Limited edition útgáfa sem sameinar ferskleika, dýpt og klassískan Hugo Boss karakter. Hagkaup, 15.999 kr.
Nýi Born in Roma frá Valentino er þess virði að skoða fyrir sumarið.

Meira úr fegurð

Fegurð

Nýjar og spennandi snyrtivörur á Tax Free

Fegurð

Förðunar­fræðingur gefur ráð um húðumhirðu og förðun á fermingar­daginn

Fegurð

Snyrtivörurnar sem Laufey notaði á Grammy verðlauna­hátíðinni

Fegurð

Nýjar og spennandi snyrtivörur á Tax Free

Fegurð

ChitoCare á Tax Free

Fegurð

Nýr Kylie Jenner ilmur

Fegurð

Nýtt og spennandi á Tax Free

Fegurð

Heitast í hári haustið 2025