„Ómissandi í snyrtitöskuna“
Teint Idôle Ultra Wear Stick Foundation nota ég sem bronzer og er ein af þessum vörum sem ég klára alltaf og kaupi strax aftur. Liturinn er akkúrat eins og ég vil hafa hann og áferðin kremuð sem gerir þetta svo auðvelt í notkun, óóóómissandi í minni snyrtitösku.
„Gera varirnar extra djúsí“
Þegar maður fær að prófa endalaust af snyrtivörum finnst mér það vera ansi sterk meðmæli þegar maður kaupir eitthvað aftur og aftur. Lifter Glossinn frá Maybelline í litnum Toffee er ein af þeim vörum. Áferðin er nærandi og gefur vörunum fallegan, djúsí gljáa, en það er liturinn sem gerir þetta að uppáhaldi hjá mér. Toffee er hinn fullkomni nude-tónn að mínu mati - svona „þínar varir, en betri“.
„Body Lotion-ið sem ég þarf alltaf að eiga“
„Á alltaf aukabirgðir“
Ég nota Bronzing gelið frá Sensai í stað farða á hverjum degi. Það er svo létt að ég finn varla fyrir því á húðinni, auðvelt í notkun og gefur fallegan, bronsaðan blæ sem lætur mig strax líta aðeins frísklegri út – til dæmis fyrir vinnuna. Ég set gelið á, bæti smá hyljara þar sem þarf og set létt púður yfir. Einfalt og fljótlegt. Ég kaupi það alltaf aftur og passa mig á að eiga alltaf eitt til vara!
„Húðin aldrei verið betri“
Ég hef verið að nota Centella-línuna frá SKIN1004 síðan um áramótin og húðin mín hefur sjaldan, ef nokkurn tíman, verið í jafn góðu jafnvægi. Ég hef lengi glímt við viðkvæma og vandræðagjarna húð, en síðan ég bætti þessum vörum inn í kvöldrútínuna mína hefur ástand húðarinnar batnað til muna. Húðin er rólegri, jafnari og almennt mun heilbrigðari. Centella-línan er því orðinn fastur liður í minni kvöldrútínu og ég get hiklaust mælt með henni - og verðið svo ótrúlega sanngjarnt líka, sem er ennþá meiri plús!
„Uppáhalds sólarpúðrið mitt“
Mineralize Skinfinish Natural frá MAC í litnum Give Me Sun er uppáhalds sólarpúðrið mitt og mér finnst mér það alltaf standa fyrir sínu, sama hvort það er sumar eða vetur. Það er líka auðvelt að aðlaga litinn að húðlitnum og byggja hann upp eftir því hversu mikinn lit maður vill.
„Heldur öllu á sínum stað“
„Uppáhalds kombó fyrir krullurnar mínar“
Ég elska sjampóið og næringuna úr Curl Defining-línunni frá Not Your Mothers. Þau virka ótrúlega vel saman á krullurnar mínar - hárið verður mjúkt, fær góðan raka og krullurnar verða fallega skilgreindar án þess að hárið verði þungt. Mér finnst það líka verða minna úfið þegar ég nota þetta kombó. Svo er ilmurinn geggjaður og það skemmir alls ekki fyrir hvað vörurnar eru á góðu verði! Algjört uppáhalds kombó fyrir krullurnar mínar.
„Keypt aftur og aftur í yfir áratug“
Fljótandi eyelinerinn frá Artdeco er sá eini sem ég hef keypt aftur og aftur í yfir 10 ár. Hann er einstaklega auðveldur í notkun, líka fyrir þá sem eru ekki vanir að setja á sig eyeliner. Artdeco varalitablýantinn nota ég svo bókstaflega þar til bara oddurinn er eftir. Formúlan er frábær og liturinn nr. 131 er í miklu uppáhaldi hjá mér.
Tax Free-dagar standa yfir í Hagkaup, Smáralind til 9. september. Sjáumst við snyrtivörurekkann!