Fara í efni

Spennandi snyrtivörur á Tax free - meðal annars geggjað litað dagkrem á 1.611 kr!

Fegurð - 6. júlí 2026

Á Tax Free verða snyrtivöruhillurnar skyndilega aðeins meira freistandi en venjulega og lúxusvörur sem við höfum haft augastað á lengi detta loksins inn í „nú eða aldrei”- flokkinn. Förðunarfræðingurinn okkar fór í gegnum úrvalið og fann nýjar og spennandi snyrtivörur sem gera ferðina í Hagkaup meira en þess virði.

Falinn fjársjóður

Nokkrir af þeim förðunarfræðingum sem við treystum hvað mest hafa lofað Bare Focus Tinted Hydrator frá Wet n Wild í hástert og því urðum við einfaldlega að prófa þetta margumtalaða litaða dagkrem sjálfar. Niðurstaðan kom okkur skemmtilega á óvart.

Þetta er sannkallaður falinn fjársjóður í snyrtivörudeildinni - létt formúla sem jafnar húðlitinn, gefur fallega ljómandi áferð og lætur húðina líta ferska og heilbrigða út án þess að verða þung á henni. Útkoman minnir á mun dýrari vöru en verðmiðinn gefur til kynna, sem gerir þetta ein bestu snyrtivörukaupin sem við fundum á Tax Free.

Ef þú átt leið um snyrtivörudeildina í Hagkaup mælum við hiklaust með að setja þetta á listann.

Hagkaup, 1.611 kr.

Varablýanturinn með bestu endinguna

Við höfum prófað ótal varablýanta í gegnum tíðina, en YSL Loveshine Nude Kiss Shaper Sculpting Lip Liner er einn af þeim sem hefur staðið hvað best undir væntingum. Formúlan er mjúk og auðveld í notkun, en það sem heillaði okkur mest er hversu vel hann endist á vörunum yfir daginn.

Liturinn 102 kom sérstaklega skemmtilega á óvart. Þetta er hinn fullkomni your lips, but better litur - hvorki of bleikur né of brúnn - heldur náttúrulegur nude-tónn sem mótar varirnar fallega og passar við nánast hvaða varalit eða gloss sem er. Ef þú ert á höttunum eftir einum góðum varablýanti sem þú nærð í aftur og aftur, þá er þessi vel þess virði að skoða á Tax Free.

Hagkaup, 3.708 kr.

Dior Backstage Glow Maximizer pallettan hefur verið á óskalistanum okkar lengi. Við höfum heyrt fegurðaráhugafólk og förðunarfræðinga lofa hana í hástert árum saman og ákváðum loksins að sjá hvort hún stæðist væntingarnar. Nú skiljum við vel af hverju hún hefur notið svona mikilla vinsælda.

Pallettan gefur húðinni fallegan ljóma sem hægt er að byggja upp, allt frá náttúrulegri áferð yfir í eitthvað örlítið meira extra. Þetta er kannski ekki snyrtivaran sem þú þarft, en hún er klárlega ein af þeim sem þig mun langa í um leið og þú kemur við hana og er eitthvað sem gefur förðuninni ákveðinn x-faktor og lúxusblæ.

Pallettan kemur í nokkrum litatónum, við völdum universal litinn.
Dior Backstage-línan er loksins komin til landsins og fæst nú í fyrsta sinn á Tax Free afslætti í Hagkaup, Smáralind.

Frábær farðahreinsir

Blue Lagoon BL+ Cleansing Balm kom okkur skemmtilega á óvart. Hreinsirinn leysir farða og óhreinindi á áhrifaríkan hátt án þess að þurrka húðina, en skilur hana eftir mjúka, nærða og fallega ljómandi. Sannkölluð lúxusupplifun sem vert er að kíkja á.
Hagkaup, 3.620 kr.
Blue Lagoon BL+ The Cream er einstaklega nærandi andlitskrem sem við mælum sérstaklega með að nota á kvöldin. Það gefur húðinni djúpan raka og skilur hana eftir mjúka og þægilega yfir nóttina. Hagkaup, 7.176 kr.

Augnblýantur sem endist

YSL Lines Liberated augnblýantarnir er mjúkir, vatnsheldir augnblýantar sem haldast einstaklega vel á allan daginn. Renna auðveldlega á augnlokið og gefa fallegan, endingargóðan lit. Litatónarnir eru fjölbreyttir og skemmtilegir, sem gerir það auðvelt að leika sér með bæði klassískt og litríkt útlit án þess að fórna endingu.
Hagkaup, 4.515 kr.
Vinsæli Lash Clash maskarinn frá YSL kemur nú í fleiri skemmtilegum litatónum, við erum sérstaklega spenntar fyrir þeim brúna.
Hagkaup, 5.643 kr.

Spennandi nýjungar

Strobe Beam Bronzelighter er nýr fljótandi bronzer frá MAC sem gefur húðinni fallegan, sólkysstan ljóma og náttúrulega mótun í einu skrefi. Formúlan blandast auðveldlega inn í húðina og skilur eftir mjúka, algerlega áreynslulausa áferð.
Hagkaup, 4.669 kr.
Hér má sjá litatónana.

Það er ekki á hverjum degi sem Shiseido kemur með nýjung á markað, en þegar það gerist vekur það alltaf forvitni okkar. Nýjasta viðbótin er Shiseido Color + Glow Enhancer sem er létt púður sem sameinar lit, ljóma og mjúka skyggingu í einni stroku. Áferðin blandast auðveldlega inn í húðina og gefur náttúrulegan ljóma á sama tíma og hún mýkir ásýnd fíngerðra lína. Varan er fjölhæf og hentar bæði á kinnar, augnlok og sem skygging.

Hagkaup, 8.305 kr.

Gosh Copenhagen Baked To Blush breytir leiknum þegar kemur að kinnalitum. Varan byrjar sem fljótandi formúla sem er síðan bökuð á terracotta-flísum, sem gefur henni þessa mjúku, ljómandi áferð með fíngerðum gljáa sem lyftir kinnunum á náttúrulegan hátt. Gosh kemur alltaf skemmtilega á óvart og vörurnar eru á viðráðanlegu verði sem skemmir alls ekki fyrir.

Hagkaup, 2.740 kr.

Clarins Wonder Perfect 5D Mascara er nýjasta viðbótin frá Clarins og lofar augnhárum sem virðast bæði fyllri, lengri, sveigðari og betur skilgreind,  með nærandi virkni í leiðinni. Maskarinn endist allt að 24 klukkustundir og er hannaður til að byggjast upp án kekkja, frá náttúrulegu yfir í meira áberandi útlit. Tvöfaldur bursti hjálpar til við að dreifa formúlunni jafnt frá rót að enda fyrir lyft og skilgreind augnhár.

Hagkaup, 5.160 kr.

Rosy Glow Stick úr Backstage línu Dior er kremkinnalitur sem hefur klárlega unnið sér fastan sess hjá okkur. Áferðin er mjúk og auðveld í notkun og gefur kinnunum ferskan, náttúrulegan ljóma sem lífgar húðina við á núlleinni. Kemur nú í þremur nýjum litatónum: Pomelo, Dragonfruit og Guava.

Rosy Glow Stick frá Dior fæst í Hagkaup, Smáralind.

Organic Coconut Face Tan Spritz er létt og fersk mist-formúla sem gefur húðinni náttúrulegan ljóma og smá sólkysstan blæ, án þess að hún verði þung eða þurr.

Formúlan er auðguð með kókosvatni, níasínamíði, panþenóli og hýalúrónsýru sem hjálpa til við að róa húðina, auka raka og styðja við heilbrigðan, jafnan húðlit. Hún skilur húðina eftir mjúka, raka og fríska. Þetta er fullkomin vara til að viðhalda brúnkunni yfir sumarið eða gefa húðinni ferskan ljóma allt árið  og kemur skemmtilega á óvart miðað við verðið.

Hagkaup, 2.579 kr.

Guerlain Météorites púðrið sem margar þekkja kemur nú í pressuðu púðurformi. Þetta goðsagnakennda perlupúður sameinar litaleiðréttandi og ljómandi perlur sem jafna húðlit, minnka gljáa og gefa húðinni fallegan, náttúrulegan ljóma. Nýja formúlan inniheldur 95% innihaldsefna af náttúrulegum uppruna og skilur eftir sig silkimjúka áferð sem situr fallega á húðinni yfir daginn. Þetta er klassík í nýjum búningi fyrir þau sem vilja fá lúxusljóma með áreynslulausri áferð.

Snyrtivörurnar frá Guerlain fást í Hagkaup, Smáralind.
Guerlain KissKiss Bee Glow Plump er ljómandi varanæring sem sameinar umhirðu og fyllingu í einni formúlu. Hún er auðguð með hunangi, hringpeptíðum og hýalúrónsýru sem veita vörunum djúpan raka og mýkt í allt að 24 klukkustundir.

Real Techniques burstarnir hafa lengi verið þekktir fyrir að standa alltaf fyrir sínu, og nýjasta viðbótin er engin undantekning. Hér færðu vandaða bursta sem gera förðunina einfaldari og jafnari, án þess að það kosti of mikið. Full Beat burstasettið er nýjasta nýtt frá Real Techniques og hentar fyrir fljótandi, kremkenndar- og púðurformúlur.

Hagkaup, 2.982 kr.
Ný og spennandi varagloss úr vinsælu Lifter-línu Maybelline. Hagkaup, 2.176 kr.
Gellökkin frá Essie eru í uppáhaldi hjá okkur en Midsummer-línan er tilvalin í sumarveislurnar.

Ilmsprey með kombakk

Nú virðast allir og amma þeirra vera að koma út með ilmsprey í anda Sol de Janeiro, hér eru nokkur sem vöktu athygli okkar sem hægt er að nota jafnt á líkama sem og í hárið.
Heldur betur nammilegir ilmirnir frá Valentino. Pistasíuilmurinn er í uppáhaldi hjá okkur! Hagkaup, 6.450 kr.
Biotherm ilmirnir koma skemmtileg á óvart og eru mjög frískandi en merkið er á 25% afslætti þessa dagana. Hagkaup, 4.874 kr.
Ný og frískandi líkams- og hársprey frá Lancôme sem eru tilvalin fyrir sumartímann.

Íslenskt, já takk!

ChitoCare Beauty er íslenskt húðvörumerki sem byggir á nýtingu hráefna úr sjónum við Íslandsstrendur – með sjálfbærni og húðheilbrigði í forgrunni. Það sem gerir vörurnar sérstakar er kítósan-fjölliðan, náttúrulegt efni sem hefur verið rannsakað ítarlega og sýnt fram á að hefur einstaklega jákvæð áhrif á húðina.
Styrkjandi dagkrem sem endurnærir húðina með djúpum og langvarandi raka, styrkir náttúrlega rakavörn húðarinnar og verndar gegn áhrifum oxunar. Fyrir sléttari og stinnari húð á hverjum degi, nú í endurbættri formúlu. Hagkaup, 17.739 kr.
Innsæi-línan frá Chitocare er lúxus í kvöldrútínuna og minnir helst á rándýrt spa. Mælum með að tékka á þessum á Tax Free.
Marine Super Hydration Mask fylgir með kaupum fyrir 12.990 kr. eða meira frá Chitocare.

Á óskalistanum

Soleil Neige frá Tom Ford er á óskalistanum okkar fyrir sumarið, ilmar eins og gott sumarfrí í flösku!
Lip Glow Butter varaglossin frá Dior koma nú í þremur nýjum litatónum!

Tax Free af snyrtivörum stendur yfir í Hagkaup, Smáralind út 8.júlí.

Meira úr fegurð

Fegurð

Við myndum kaupa þessar vörur á 25% afslætti hjá Lyfju

Fegurð

Nýjar og spennandi snyrtivörur á Tax Free

Fegurð

Nýir sumarilmir á Tax Free

Fegurð

Förðunar­fræðingur gefur ráð um húðumhirðu og förðun á fermingar­daginn

Fegurð

Snyrtivörurnar sem Laufey notaði á Grammy verðlauna­hátíðinni

Fegurð

Nýjar og spennandi snyrtivörur á Tax Free

Fegurð

ChitoCare á Tax Free

Fegurð

Nýr Kylie Jenner ilmur