Í hjarta ilmsins er vanilluorkídea sem gefur frá sér kremkenndan og hlýjan blómakeim. Léttir ozonic-tónar og örlítið saltur ferskleiki skapa spennandi andstæðu og færa ilminum loftkenndan, næstum steinefnaríkan blæ. Í grunninum kemur dökkt kakó fram með ríkulegri og flauelsmjúkri dýpt sem gefur ilminum seiðandi gourmand-karakter.
Ilmnótur:
Vanilluorkídea • ozonic-tónar • saltur ferskleiki • dökkt kakó
Gucci-ilmirnir hafa verið sérlega vinsælir hér á landi en sá nýjasti slær öll met. Gucci Flora Gorgeous Orchid Intense fæst í Hagkaup, Smáralind.