Glossí húð
Það er engum blöðum um það að fletta að ljómandi húð er og verður líklega alltaf eftirsótt. Í dag er þó minna um ýkt og glimmerkennd ljómapúður og húðin sjálf fær að vera hrein og náttúrulega ljómandi og jafnvel “glossí”. Til að framkalla þennan eftirsótta ljóma mælum við með því að nota vel af djúsí andlitskremi áður en léttur farði er borinn á húðina.

Hér sést hvernig glossuð áferð er notuð á augnlokin en það er stórt trend í sumar.Svona ljóma er hægt að ná fram með fljótandi highlighternum Shimmering Skin Perfector frá Becca.
Kremkennda ljómastiftið Love Glow Glase Stick frá Becca er klæðskerasniðið fyrir þetta glossí útlit. Forever Skin Glow frá Dior er farði sem gefur húðinni ljóma og helst vel á húðinni. Pure Shots Perfect Plumper frá YSL gefur húðinni raka sem jafnast á við stórt vatnsglas.
Varaglossið fær uppsreist æru í vor og tekur við af möttum, “liquid lips” sem eru síður málið á vor- og sumarmánuðum.Geggjað nærandi varagloss frá Sensai.
Pastel
Pastellitir eru ekki eingöngu heitir í fatnaði og fylgihlutum í sumar heldur verða pastellitaðir augnskuggar einstaklega vinsælir. Mintugrænn og lillafjólublár eru þeir litir sem við munum sjá hvað mest af næstu misserin.
Hér eru tveir heitustu tískulitir sumarsins notaðir á sama tíma á augnlokið. Augnskugginn Beautiful Iris frá MAC. Sjúklega sæt augnskuggapalletta úr vorlínu Dior sem fæst í Hagkaup, Smáralind.
Nútímaleg Smokey
Smokey-augnförðun er alltaf klassísk en í sumar verða sanseraðir litir og “ófullkomin” rokk og ról áferð talin meira “chic” en týpísk Instagram-förðun. Hér má sjá fallega útgáfu baksviðs hjá Tom Ford og Elie Saab.
Aura Dew er kremkennd highlighterformúla frá Shiseido sem hægt er að nota jafnt á augu sem á húðina eða varir og býr til eftirsóknarvert “wet look”.Æðisleg Soft Smokey-förðun hjá Elie Saab. Sexí og seiðandi hjá Tom Ford.
Naked Honey-pallettan frá Urban Decay er með æðislegt litaúrval.
Rauðar varir og mínimalísk húð
Hvað er franskara og fallegra en réttur, rauður varalitur? Rauðar varir verða vinsælar í sumar en gjarnan paraðar við mjög mínimalíska andlitsförðun. Glossuð áferð verður líka stórt trend.
Baksviðs hjá Moschino.
Litur 999 frá Dior.
Íkonískur varalitur Dior
Varalitur númer 999 frá Dior er sá litur sem notaður var á fyrirsæturnar á fyrstu tískusýningu Dior árið 1947. Hann er í uppáhaldi hjá mörgum fallegum og frægum konum, enda virðist hann henta öllum húðtónum vel.
Sterkar, rauðar varir en restinni af förðuninni haldið í lágmarki.
Hvít augnförðun
Hvítur augnskuggi átti kombakk á vortískusýningarpöllunum eftir fjarveru síðustu árin. Auðvelt er að stela stílnum með því að nota hvítan eyeliner en mikilvægt er að nota svartan þétt upp við augnhárin og vel af svörum maskara til að ramma augun inn.
Augnblýanturinn YEYO frá Urban Decay. Hvítur augnskuggi er óneitanlega með næntís-yfirbragði.
Varalitur númer 999 frá Dior er sá litur sem notaður var á fyrirsæturnar á fyrstu tískusýningu Dior árið 1947. Hann er í uppáhaldi hjá mörgum fallegum og frægum konum, enda virðist hann henta öllum húðtónum vel.