Næntís gloss
Við erum meira en til í næntís-varatískuna aftur. Áberandi varablýantur og ljósara gloss, það er eitthvað!

Eitt af þeim trendum sem við erum hvað spenntastar fyrir eru glossaðar varir með næntís-varablýanti eins og sást baksviðs hjá tískuhúsinu Acne.

Stunning Nude frá Sensai, fæst í Hagkaup í Smáralind. Strip Down frá MAC, Smáralind.
Við komumst ekki hjá því að taka eftir því að förðunarmeistarinn hjá Acne notaði uppáhaldsglossinn okkar frá Dior. Hann heitir Dior Addict Stellar Lip Gloss og er númer 640. Fæst í Hagkaup í Smáralind.
Dior Addict Stellar Lip Gloss 640.
Glært og gordjöss gloss!
Glært varagloss hjá Ferragamo. Glossin frá Gosh eru æði og á hagstæðu verði. Hagkaup, Smáralind.
Grafískur eyeliner
Eyeliner var áberandi á vortískusýningunum. Hann var gjarnan notaður allt í kringum augun eða formaður með grafískum línum á óhefbundinn hátt.

Fluidline, gelkenndur eyeliner frá MAC, Smáralind. Slide On-augnblýantur frá NYX, Hagkaup.

Dior. Giambattista Valli. Skemmtilega listrænn eyeliner hjá Christian Siriano.

Eyeliner í öðrum litum en svörtum var einnig áberandi og er skemmtileg tilbreyting í vor og sumar.
Litríkir eyelinerar hjá Salvatore Ferragamo.

Ljómandi
Hvað er fallegra en ljómandi húð, sérstaklega yfir vor- og sumarmánuðina?

Hér eru uppáhaldssnyrtivörurnar okkar til að framkalla ómótstæðilega náttúrulegan ljóma.
Shimmering Skin Perfector frá Becca, Hagkaup, Smáralind. Glowing Base frá Sensai, Hagkaup. Cream Colour Base frá MAC, Smáralind.
Appelsínurauðar varir
Okkur finnst fátt meira viðeigandi við ljómandi, sólkyssta húð en appelsínurauðar varir. Nokkur af stærstu tískuhúsum heims voru sammála okkur.
Max Mara. Baksviðs hjá Ralph & Russo.
Morange frá MAC, Smáralind. Drama Matte frá Lancôme í litnum Obsessive Red, Lyfja.
Morange frá MAC er kremaður á meðan Drama Matte frá Lancôme er mattur varalitur sem endist á vörunum allan daginn.

Stutt og laggott
Klippingarnar sem tröllríða tískuheiminum þessi dægrin eru í styttra lagi og náttúruleg áferð hársins fær að njóta sín. Þvertoppar og seventís-toppar eru einnig sjóðheitir.

Stutt, frjálslegt og með náttúrulegri áferð eru einkunnarorð vorsins þegar kemur að hári.
Hver þorir í stutt fyrir vorið?