Við mælum með því að nýta Tax Free-afsláttinn í Hagkaup á Miðnæturopnun í Smáralind 4. júní.
Serumið sem slegið hefur í gegn
Við þurfum flest á smá „bústi“ að halda eftir veturinn og þá kemur Abeille Royale Youth Watery Oil Serum sterkt inn. Þetta leynivopn að ljómandi húð er gott að nota kvölds og morgna og húðin fyllist raka, verður þéttari og ljómandi á einu augabragði. Nýjasta útgáfan af þessu vinsæla serumi er hápunktur 15 ára rannsókna og níu einkaleyfa sem undirstrika kraft hunangs í húðumhirðu. Líkt og aðrar vörur í Abeille Royale-línunni nýtir nýja serumið næringarríkt hunang svarts býflugnastofns ásamt drottningarhunangi. Það inniheldur þrenns konar hunang, þar sem hver tegund hefur sérstakt hlutverk í endurbættri formúlunni sem gefur ljómandi og nærða húð.
Vernd, viðgerð og ljómi- allt í einu
Abeille Royale UV Skin Defense frá Guerlain sameinar SPF 50 og PA++++ vörn gegn skaðlegum geislum sem brjóta niður kollagen. Létt, litað og silkimjúkt – með Dynamic Blackbee Repair og White Honey sem hjálpa til við að draga úr hrukkum, bæta stinnleika og gefa ljóma. Fullkominn ferðafélagi í sumar!
Goðsagnakennda sólarpúðrið
Guerlain voru þeir fyrstu til að koma með sólarpúður á markað - og fáir komast með tærnar þar sem þau eru með hælana, enn þann dag í dag. Nú koma þau í endurfyllanlegum og nýjum umbúðum í takmörkuðu upplagi og í þremur mismunandi litablæbrigðum. Ef þú ert á höttunum eftir sólkysstu, ljómandi útliti á núlleinni eru Terracotta sólarpúðrin málið.
Hinn fullkomni farði
Terracotta Le Teint er hinn fullkomni farði að okkar mati, með satín mattri áferð sem helst ótrúlega vel á húðinni og hentar hvaða húðgerð sem er. Kemur nú einnig í ljómandi útgáfu, fyrir þau sem vilja extra ljóma á húðina.
Léttur hyljari
Förðunarfræðingar halda varla vatni yfir Terracotta-hyljaranum frá Guerlain en hann er hægt að nota hvort sem er við litað dagkrem, farða eða yfir sólarvörnina eða dagkremið í sumar.
Ljómandi nærðar varir
Varaolíur hafa slegið í gegn á síðustu misserum en Kisskiss Bee Glow Oil frá Guerlain tekur trendið upp á næsta stig. Nærandi olían skilur varirnar eftir vel nærðar, glansandi og einstaklega djúsí. Litaúrvalið er líka frábært.
Sjáumst á Miðnæturopnun í Smáralind 4. júní!