Fara í efni

Nýjar og spennandi snyrtivörur á Tax Free

Fegurð - 27. febrúar 2026

Við verðum alltaf eins og krakkar í nammibúð þegar Tax Free dagar skella á í Hagkaup, hjartað slær aðeins hraðar og snyrtivörukarfan fyllist á methraða. Nú er tilefnið extra spennandi því hér er mætt það allra nýjasta og heitasta í heimi snyrtivara sem fer beint á „verð að prófa“-listann okkar.

Spennandi farðar

Nú hoppa aðdáendur vinsæla Double Serumsins frá Clarins hæð sína þar sem nýr og spennandi farði var að lenda og hefur fengið gríðargóðar viðtökur. Um er að ræða farða sem blandast við serumið þegar þú pumpar honum út en hægt er að stilla hversu mikla þekju þú vilt fá út úr honum. Hann kemur skemmtilega á óvart en ef þú skrúfar alla leið er hann tiltölulega vel þekjandi og verður algerlega eitt með húðinni og frekar mattur en ljómandi á húðinni. Mælum með því að skoða þennan á Tax Free í Hagkaup.
Terracotta Joli Teint frá Guerlain er nýtt, litað dagkrem með silkimjúkri formúlu og gefur húðinni jafnan og sólkysstan ljóma með náttúrulegri, byggjanlegri þekju. Formúlan endist í allt að 24 klst., smitar ekki, með sólarvörn spf 20 og hentar öllum húðgerðum.
Make Em Wonder er nýr farði frá NYX sem hefur fengið góðar viðtökur. Honum er lýst sem mjúkum, möttum farða sem auðvelt er að byggja upp, endist allan daginn og er með náttúrulegra áferð sem fellur að húðlitnum. Hagkaup, 2.576 kr.
BB Stick er nýtt farðastifti frá GOSH sem er með léttri til meðalþekju og kremkenndri, auðbyggjanlegri formúlu sem bráðnar inn í húðina og skilur eftir náttúrulega áferð. Fullkomin snyrtivara til að fríska upp á farðann á ferðinni.
Gullfalleg fyrirsæta úr auglýsingaefni frá Guerlain sem kynnir Terracotta Joli Teint.

Nýir maskarar

Lash Idôle Curl Goddess er nýr maskari frá Lancôme sem er fullkominn til þess að lengja og þykkja augnhárin. Með 40° snúnum bursta og nýstárlegri „Fast Setting Curl Complex“ tækni veitir hann lyftingu, allt að 1,5x meiri sveigju og allt að 800% meiri fyllingu eftir eina umferð. Létta formúlan þornar hratt og veitir allt að 30 klukkustunda endingu án þess að mynda kekki, flagna eða smitast. Augnhárin líta út fyrir að vera lyft, fyllri og vel skilgreind án þess að verða þung. Hagkaup, 4.434 kr.
Lash Sensational Body er nýr maskari frá Maybelline sem lyftir og gefur augnhárunum mikla fyllingu sem endist, með silkimjúkri og léttbyggjanlegri formúlu sem rennur mjúklega á og hentar jafnt hversdags sem og spari. Tvöfaldur spírallburstinn lyftir, aðskilur og magnar hvert hár frá rót til enda og gefur augnhárunum hámarksþykkt.

Brúnkuvörur

Cream Dream Bronzer er kremkenndur bronser frá Gosh sem var að koma á markað. Einstaklega kremaður en þornar með púðurkenndri áferð, gefur húðinni lit og frískleika á núlleinni! Hagkaup, 3.063 kr.
Nýi Lumi Bronze Le Stick Soleil bráðnar inn í húðina og gefur sólkysstan, franskan strandarljóma með byggjanlegri formúlu sem rennur mjúklega á húðina. Hann festist eins og púður og heldur hlýjum ljóma allan daginn.

Varir

Lip Lingerie Liner Stain er varatússlitur frá NYX sem við erum mjög spenntar fyrir. Hagkaup, 1.850 kr.
Hyaluron Tint Lip Stain Serum gefur vörunum raka og „stainar“ þær á sama tíma. Spennandi vara frá L´Oréal Paris sem er komin í Hagkaup, Smáralind.
Jelly Job Lip Gloss er kóreskt varagloss frá NYX sem nærir varirnar og veitir þeim mjúka og gelkennda áferð. Varirnar virðast fyllri með glerkenndum ljóma. Hagkaup, 2.334 kr.
Lip Oil Balm frá Clarins er ein af okkar uppáhaldssnyrtivörum. Nú er komið takmarkað upplag af þessum bjarta, bleika lit. Hagkaup, 4.031 kr.
Lip Comfort Oil er goðsagnakennd varaolía frá Clarins sem sameinar gljáa, raka, næringu og þægindi í léttum, bleikum og björtum lit. Hagkaup, 4.031 kr.

Húð

Wonder Snatch-púðrið frá NYX hefur fengið lof á samfélagsmiðlum og er gjarnan líkt við púðrið frá Huda Beauty. Hlökkum til að prófa! Hagkaup, 2.092 kr.
Buttermelt Glaze Stix er silkimjúkt highlighter stifti sem veitir ljómandi gljáa frá toppi til táar án þess að setjast í fínar línur og klístrast. Hagkaup, 2.253 kr.
Nýir og spennandi kinnalitir frá Gosh eru komnir í hillurnar!
Aquasource Electrolyte Frá Biotherm er gelkennt krem sem lofar að halda húðinni rakri í allt að 100 klst og minnka fínar línur á aðeins 1 klukkustund. Hagkaup, 6.047 kr.
Youth Repair Eye Care er augnkrem frá Guerlain sem sléttir, lýsir og opnar augnsvæðið samstundis. Hentar öllum húðgerðum, einnig viðkvæmri húð.

Ilmir

Power of you er nýr ilmur úr smiðju Armani. Mælum með að tékka á þessum, einstaklega ávinabindandi og hentar þeim sem elska kynþokkafulla ilmi með ávaxtakeim.
Söngkonan Madonna er í nýrri, sjóðheitri auglýsingaherferð fyrir The One frá Dolce & Gabbana.
Libre Berry Crush er sá nýjasti úr smiðju YSL. Hann gefur forverum sínum ekkert eftir og er í uppáhaldi hér á bæ.

Augnskuggar

Idôle Goddess Dimension eru nýir, stakir augnskuggar frá Lancôme. Silkimjúk formúlan rennur yfir augnlokið og gefur sterkt litapigment og glans án þess að setjast í fínar línur. Hagkaup, 4.515 kr.
Nýjasta augnskuggapallettan úr smiðju Guerlain er ofurfalleg og kemur í litatónum sem eru bæði klæðilegir en láta okkur líka stíga aðeins út fyrir þægindarammann. Formúlan er að sjálfsögðu silkimjúk og auðveld í notkun.
GOSH var að koma á markað með förðunarbursta sem líta ekkert smá vel út!

Sjáumst í snyrtivörudeildinni í Hagkaup, Smáralind!

Meira úr fegurð

Fegurð

ChitoCare á Tax Free

Fegurð

Nýr Kylie Jenner ilmur

Fegurð

Nýtt og spennandi á Tax Free

Fegurð

Heitast í hári haustið 2025

Fegurð

Spennandi ilmir frá Gucci, Burberry og Marc Jacobs

Fegurð

Nýr Boss ilmur slær í gegn

Fegurð

Ástarbréf frá Ariönu Grande

Fegurð

Eins og fylliefni í hylki