Fara í efni

Sumarlína Chanel er hönnuð fyrir nútímafólk á ferðinni

Fegurð - 25. maí 2023

Frumkvöðullinn mikli, Coco Chanel, var alveg meðidda árið 1927 þegar hún veðjaði á að fara að bjóða upp á snyrtivörur í minni stærðum. Daglegar nauðsynjavörur sem hægt væri að henda í handtöskuna, fína veskið fyrir kvöldskemmtun eða ferðatöskuna fyrir ævintýralegt ferðalag sem ákveðið var á síðustu stundu. Sumarlína CHANEL er innblásin af þessum hugmyndum þar sem Les Beiges-línan kemur nú í ferðastærðum og inniheldur snyrtivörur sem eru fullkomnar til þess að framkalla sólkysst og ljómandi, áreynslulaust lúkk á ferðinni.

Sumarlína Chanel býður upp á ljómandi sumarvörur sem gott er að nota á ferðinni.

Fersk í fríið

Les Beiges Water-Fresh Tint kemur nú í ferðaútgáfu en um er að ræða vatnskenndan farða sem inniheldur litapigment sem gefa húðinni ljóma og örlítinn lit. Förðunarvara fyrir þau sem vilja ekki að farðinn sjáist á húðinni, tilvalinn í fríið.
Frískleiki í flösku! Les Beiges Water-Fresh Tint. Fæst í Hagkaup, Smáralind.

Sólkysst og sæt

Les Beiges Healthy Glow Bronzing Cream er goðsagnakenndur bronser sem kemur í staðinn fyrir sólarpúður. Býr til fallegan ljóma, lit og skyggingu á andlitið, alveg eins og þú sért nýkomin úr sólríku fríi. Kemur nú í fleiri litum og í ferðastærð.
Best er að nota Les Beiges Healthy Glow Bronzing-kremið með farðabursta með gervihárum og nota yfir kinnbeinin, kringum hárlínuna og yfir nefið.

Sumarljómi í flösku

Les Beiges Illuminating Oil gefur húðinni einstakan J-Lo-ljóma með gylltum blæ en formúlan inniheldur jasmínolíu sem nærir húðina.
Berið olíuna á viðbeinin, axlir, upphandleggi og fótleggina til að skapa ekta J-Lo Glow!

Áreynslulaust og ljómandi lúkk í sumar

Ombre Premiére Laque eru kremkenndir augnskuggar sem gefa augnlokunum áreynslulaust útlit og æðislegan glans. Kemur í tveimur litum, annar er meira út í beis en hinn bleiktóna. Rouge Coco Baume gefur vörunum léttan lit og næringu og kemur í litunum Pink Delight, sem er náttúrulegur bleikur litur og Sweet Treat sem er semí mattur brúntóna litur. Til að fullkomna lúkkið hefur Chanel sent frá sér tvo nýja liti í Rouge Coco Flash-formúlunni: Destination sem er bleiktóna beislitur með shimmerögnum og Escapade sem er hlýtóna rauður.
Sumarlína Chanel fæst í Hagkaup, Smáralind.
Sexí og seiðandi en einfalt, sólkysst útlit í anda Chanel.
Sólarkremið frá Chanel í ferðastærð smellpassar í töskuna og er fullkomið með í sumarfríið!
Sumarlína Chanel í ferðastærð er mætt í Hagkaup Smáralind.

Meira úr fegurð

Fegurð

Bestu snyrtivörurnar á 20-40% afslætti

Fegurð

Vetrarsport er innblásturinn af nýrri Winter Glow-línu Chanel

Fegurð

Heitustu förðunar­trendin og spennandi snyrtivörur á afslætti

Fegurð

Heitustu hártrendin 2024

Fegurð

Bestu farðar ársins á 23% afslætti á Áramótabombu

Fegurð

Hugmyndir að dekurjólagjöfum á 20% afslætti

Fegurð

Snyrtivörur sem fengu förðunarfræðinginn okkar til að segja VÁ!

Fegurð

Náttúrulegar gæðavörur sem eru í uppáhaldi hjá Hollywood-stjörnunum