Húð


Þetta serum kom okkur skemmtilega á óvart og húðin okkar hefur sjaldan verið betri. Glycolic-sýran endurnýjar húðina yfir nótt og maður vaknar bókstaflega ljómandi. Inniheldur einnig olíu sem nærir. Mælum 100% með.


Ef þú ert ekki enn komin um borð í C-vítamín-lestina ertu að missa af miklu! Vítamínið góða gerir algert kraftaverk fyrir húðina og Nip+Fab-snyrtivörumerkið er nýtt uppáhald í rútínunni okkar og á kostakjörum í þokkabót.

Farðagrunnur
Við vitum flestar að það er gott ráð að undirbúa húðina vel fyrir farða. Það er hinsvegar misjafnt hvers húð hvers og eins þarfnast. Ef þú ert með þurra húð er Skin Food frá Weleda feitt krem sem margir förðunarfræðingar dásama. Glowing Base frá Sensai gefur húðinni raka og gullfallegan ljóma en Oil & Shine Control frá Smashbox er tilvalið fyrir feita húð til að halda glansi á t-svæðinu í lágmarki.
Litað dagkrem
Ertu að leita að lituðu dagkremi sem gefur húðinni ljóma, vörn, lit og raka? Hér eru okkar uppáhöld. Complexion Rescue frá bareMinerals og Ginzing-litaða dagkremið frá Origins.
Litaúrvalið er breytt í Complexion Rescue frá bareMinerals.
Farði
Synchro Skin Self-Refreshing-farðinn frá Shiseido er ein besta snyrtivara sem komið hefur á markað síðustu ár. Flókin tækni sem við kunnum ekki að útskýra hefur þau áhrif að farðinn helst á húðinni einstaklega vel yfir daginn og verður eitt með húð hvers og eins. Áferðin er dásamlega falleg og náttúruleg með miðlungsþekju. Við getum líka 100% mælt með hyljaranum í stíl.
Forever Skin Glow er miðlungsþekjandi farði sem gefur húðinni einstakan ljóma sem endist vel á húðinni. Hann er einn af okkar uppáhalds.

Total Finish-farðinn frá Sensai hefur verið kallaður fótósjopp í dós og við getum ekki verið meira sammála. Púður sem hylur vel og er með silkiáferð sem fyllir upp í fínar línur? Við værum frekar að biðja um meira. Besta snyrtivaran til að hafa í veskinu fyrir „touch up“ yfir daginn.


Highlighter
Becca gerir highlighter best og í uppáhaldi hjá okkur er Shimmering Skin Perfector í fljótandi formi. Ef þú ert að leita að þessu „extra“ sem stjörnurnar hafa þá er þetta málið! Best finnst okkur að bera hann á með dömpum förðunarsvampi frá Real Techniques.
Hyljari
Full þekja og endist vel. Geggjaður á roða og bólur. Fullkominn undir augun, birtir augnsvæðið og hylur þreytumerki vel.
Varir
Ef þú ert að leita að fullkomnu varakombói þá þarftu ekki að leita lengra! Dior Addict Stellar-varaglossinn í lit 640 og varablýanturinn Stunning Nude frá Sensai er skothelt.
Sólarpúður



Við elskum skyggingapallettuna frá NYX. Vel til þess fallin að skyggja andlitið jafnt sem augnumgjörðina. NYX er líka með gæðaförðunarvörur á sanngjörnu verði.
Augu
Við elskum 5 skugga palletturnar frá Dior. 24/7 augnblýantarnir frá Urban Decay eru æði og koma í mörgum skemmtilegum litum. Þú getur ekki klikkað með Naked-augnskuggapallettu frá Urban Decay.

Brow Blade frá Urban Decay er augabrúnavara í sérflokki. Á öðrum endanum er „túspenni“ sem hljómar mjög skerí en ef notaður rétt og létt framkallar hann strokur sem líkjast hárum. Á hinum endanum er klassískur augabrúnablýantur með mjóum oddi. 100% þess virði að prófa!
38°C Volumising-maskarinn frá Sensai er einstakur, gefur góða sveigju og helst endalaust vel á augnhárunum. Volume Effet Faux Cils frá YSL þykkir og gefur augnháraútlit í anda gerviaugnhára. Lash Sensational frá Maybelline greiðir vel úr augnhárunum og gefur góða sveigju.
Sjálfbrúnka
St. Tropez er okkar „go to“ þegar kemur að sjálfbrúnku. Serumið er æðislegt fyrir andlitið og svo notuð við andlitspreyið af og til yfir vikuna til að fríska litinn við. Hrikalega einföld leið til að gefa húðinni ljóma og lit. Express-froðan er svo í uppáhaldi þegar kemur að brúnku fyrir líkamann. Munið að bera á með hanska og þvo hendur vel eftir notkun!

Sjáumst á Tax Free í Hagkaup, Smáralind.