Karlkynið hefur að sjálfsögðu líka þörf fyrir að líta vel út en veit oftar en ekki hvar ætti að byrja að leita þegar kemur að snyrtivörum. Við erum hér til að hjálpa.

House 99 sem er snyrtivörumerki Davids Beckham er til sölu í Hagkaup á mjög viðráðanlegu verði.

Mér fannst auðveldast að dreifa úr bronsing kreminu frá David Beckham. Frábært til að fríska sig við fyrir daginn á grámyglulegum vetrarmorgnum þegar maður er orðinn hálf grár og ekki séð til sólar lengi.

Bronsing gelið frá Sensai er ein mest selda snyrtivara landsins til margra ára. Það hentar ekki síður karlkyninu en það gefur lit og ljóma sem er náttúrulegur og helst allan daginn.
Fæst í Hagkaup, Smáralind.
Ég stóðst ekki mátið og keypti aðra túpu eftir að hafa prófað bronsing gelið í fyrsta sinn hjá ykkur. Þvílíka snilldin!

Mér fannst ég mjög frísklegur eftir að konan mín hjálpaði mér við að bera serumið frá Biotherm á. Ég er hins vegar ekki viss um að ég treysti mér til þess að nota það einn og óstuddur án þess að klúðra því, mjög hræddur við að verða eitthvað flekkóttur!

Ginzing, litaða dagkremið frá Origins skorar hátt hjá báðum kynjum en það gefur mikinn raka, ver húðina fyrir skaðlegum geislum sólarinnar og húðin fær fallegan ljóma og lit.
Fæst í Lyfju og Hagkaup, Smáralind.
Eitt af fáum snyrtivörum sem ég hef keypt oftar en einu sinni í gegnum tíðina. Hrikalega ánægður með að hafa uppgötvað Ginzing-kremið, verst að konan er alltaf að stelast í það!

Við kaupum það sem David hefur að selja!