Beinar
Síðustu misseri hafa gallabuxur með beinu sniði verið vinsælar og í haust verður engin breyting þar á. Eitt besta dæmið um hámóðins gallabuxur sáum við hjá franska tískuhúsinu Celine sem er alltaf extra smart.

Steldu stílnum
Zara, 5.495 kr. Zara, 2.795 kr. Zara, 16.995 kr. Orrifinn, Meba, 24.500 kr. GS Skór, 22.495 kr. Balenciaga, Optical Studio, 44.900 kr. Zara, 6.495 kr.
Fleiri flottar
Zara, 5.495 kr. Zara, 6.495 kr. Vero Moda, 7.990 kr. Vero Moda, 8.590 kr. Avery frá Weekday. Zami frá Monki. Jackie úr Lindex.

Gallajakki
Við erum mjög skotnar í stíliseringunni hjá Celine en þar mátti sjá gallajakka paraðan yfir þykka rúllukragapeysu og svo kápu yfir. Svokallað „layering“ eða að para nokkur lög af mismunandi flíkum verður trendí í haust og má teljast með praktískari trendum fyrir okkur hér á landi þegar kólna fer í veðri.



Gallapils
Gallapils sem minna einna helst á áttunda áratug síðustu aldar voru einnig áberandi hjá Celine en nú mega þau gjarnan vera síð og úr dökku gallaefni.





Gallaskyrtur
Victoria Beckham og Isabel Marant sýndu dökkbláar gallaskyrtur þegar þær frumsýndu haustlínur sínar. Við erum að kaupa þær!



Seventís
Gallabuxur með broti niður miðjuna sem minnir okkur á tísku áttunda áratugarins verða áberandi á næstu misserum.

Gallataska
Ef þú vilt fara alla leið í gallaæðinu geturðu stolið stílnum frá tískuhúsinu Acne sem sendi gallatösku niður tískupallinn.

Strákatískan
Dökkbláar gallabuxur verða áberandi vinsælar hjá strákunum í haust eins og sjá má hér hjá tískuhúsinu Dsquared2.
Úr haustlínu Dsquared2 haustið 2021. Myndir: IMAXtree. Zara, 5.495 kr. Weekday, Smáralind. Selected, 13.990 kr. Jack & Jones, 16.990 kr. Esprit, 14.995 kr. Levi´s, 13.990 kr.