Fara í efni

Goðsagna­kenndu gallabuxurnar sem allir þurfa að eiga

Tíska - 18. maí 2023

Fáar flíkur eru jafn goðsagnakenndar og Levi´s gallabuxurnar og þá sérstaklega 501-týpan sem hefur verið grunnurinn í fataskápnum okkar í ár og aldir. Skoðum aðeins söguna og hvernig stílstjörnurnar klæðast 501 frá Levi´s í dag.

Ódauðlegur stíll

Hægt er að færa rök fyrir því að 501 gallabuxurnar séu ein mikilvægasta flík mannkynssögunnar, þar sem fáar flíkur hafa náð til jafn breiðs þjóðfélagshóps í jafn mörg ár og þessi klassíski stíll af gallabuxum. Kúrekar, námumenn, rokkstjörnur, fyrirsætur, Hollywood-stjörnur að ógleymdum Steve Jobs, hafa heillast af þeim í gegnum árin og gert stílinn ódauðlegan.

Marilyn Monroe slakar á við tökur á myndinni The Misfits í klassískum 501 frá Levi´s.
Rebellinn Marlon Brando í 501 við tökur á myndinni The Wild One frá árinu 1951.
Fína kryddið, Victoria Beckham kryddar sínar með fögrum fylgihlutum.
501 var staðalbúnaður í fataskáp næntís-stjarna á borð við Wynona Ryder.
Cindy Crawford í klipptum 501-num við tökur á Pepsi-auglýsingunni sem var gerð ódauðleg á tíunda áratugnum.
Hailey Bieber situr fyrir í Levi´s fyrir auglýsingaherferð.
Kasjúal Bob Dylan í 501-num framan á plötualbúmi sínu á sjöunda áratugnum.

Levi´s 501 í dag

Stílstjörnurnar og áhrifavaldar dagsins eru duglegir við að klæðast 501-num og keppast jafnvel um að finna "vintage" par sem er auðvitað algert gull.
Stílstjarnan Anouk Yve klæðist gjarnan 501-num frá Levi´s og hefur talað um að eiga nokkrar stærðir, jafnvel upp í fjórum stærðum stærri en hennar eigin, til að framkalla svokallað kærasta-lúkk.
Vesti, sandalar og sumarleg taska er fullkomið sumardress.
Leðurjakki og strigaskór eru gott kombó við klassísku Levi´s-gallabuxurnar.
Ballerínuskór og krispí hvít skyrta er klassískt kombó sem klikkar seint.
Gefðu útlitinu franskt væb með kvenlegri skyrtu og leðurtösku.
Það er ákveðinn klassi yfir þessari samsetningu sem fer aldrei úr tísku.
Prófaðu að kaupa gallabuxurnar nokkrum númerum of stórar til að skapa kæruleysislegt og kúl lúkk.
Emili Sindlev klæðist sínum Levi´s við gallajakka, New Balance-strigaskó, derhúfu og tösku frá Louis.

30% afsláttur af 501 frá Levi´s

Levi´s-búðirnar bjóða upp á 30% afslátt af 501-týpunni út sunnudaginn 21. maí og þess vegna um að gera að fjárfesta í þessari klassísku flík.
90´s útgáfa af 501, Levi´s, 17.990 kr.
Original 501 í litnum Brando, Levi´s, 14.990 kr.
Cropped útgáfa af 501-num, Levi´s, 16.990 kr.

Meira úr tísku

Tíska

20% afsláttur af heimsþekktum vörumerkjum á borð við Polo Ralph Lauren

Tíska

50 sætustu sparikjólarnir

Tíska

Flottasta golflína J. Lindeberg hingað til

Tíska

Þetta þurfa karlarnir að eiga í fataskápnum fyrir vorið

Tíska

Rándýr lúkk úr ZARA fyrir vorið

Tíska

Stílisti mælir með á afslætti á Kauphlaupi

Tíska

Hátískusólgleraugu á 25% afslætti

Tíska

Skrifstofu­gyðjan slær í gegn