Fara í efni

Parísartískan lendir í Smáralind

Tíska - 25. febrúar 2026

Franska tískuvörumerkið ba&sh verður til sölu í Mathilda í Smáralind frá og með föstudeginum 27. febrúar og því fylgir að sjálfsögðu þessi áreynslulausi glæsileiki sem Parísarkonur eru þekktar fyrir. Merkið var stofnað í París árið 2003 af vinkonunum Barbara Boccara og Sharon Krief, sem lögðu af stað með eina skýra sýn: að skapa sinn eigin draumafataskáp. Föt sem eru smart, kvenleg og töff á sama tíma, sem auðvelt er að hreyfa sig í og elska, án þess að kosta hvítuna úr augunum.

Þessi guðdómlegi leðurjakki verður örugglega ekki lengi í hillunum en hann rauk beint á toppinn á óskalistanum okkar. Kona getur látið sig dreyma!

Ba&sh í Mathilda Smáralind

Hér má sjá brot úr línunni en ba&sh er þekkt fyrir fallega, flæðandi kjóla og vel sniðna samfestinga en býr þó yfir stórri vörulínu sem mun bætast við í verslunina með tíð og tíma.
Hugmyndin var að klæða okkur fyrst, svo vinkonurnar og að lokum viðskiptavini okkar. Það sem við vildum voru föt sem væru smart, sem við gætum hreyft okkur í og ​​væru ekki seld á stjarnfræðilega háu verði. Og það virkaði vel frá upphafi vegna þess að eftirspurnin var til staðar.
Vinkonurnar Barbara Boccara og Sharon Krief, stofnendur ba&sh.

Í tilefni þess að fyrsta sendingin af ba&ash lendir í Mathilda í Smáralind á föstudaginn, 27. febrúar, verður boðið upp á léttar veitingar og kynningu á vörumerkinu í versluninni milli 16:00-19:00.

Meira úr tísku

Tíska

Sparidress fyrir fermingar­mömmur

Tíska

Fermingarfötin 2026

Tíska

Stærstu trendin á tískuviku í Köben

Tíska

Fermingar­tískan úr Galleri 17

Tíska

Vortrendin 2026 sem stílistinn okkar er spenntust fyrir

Tíska

Stílisti velur yfirhafnir á útsölu

Tíska

Nýtt og spennandi í ZARA

Tíska

Glimmer & glans á áramótum