Hlífðargleraugu
Svokölluð „Shield“-sólgleraugu eru mál málanna um þessar mundir og eitt helsta trendið í dag þegar kemur að fylgihlutatískunni. Þau einkennast af einni stórri, samfelldri linsu sem liggur yfir allt andlitið og sameina sportlegt yfirbragð, framúrstefnulega hönnun og tísku „statement.“ Hér eru nokkrar myndir frá tískuviku þar sem stílinn nýtur sín og fyrir neðan sjáið þið hvernig hægt er að stela stílnum.
CBK stíllinn
Ef þú ert heilluð af stíl Carolyn Besette Kennedy eins og restin af heimsbyggðinni hefur næntísstíllinn líklega ekki farið framhjá þér. Þar koma sporöskjulega eða „oval“-gleraugu sterk inn enda klæða þau flest vel. Þar sem stíllinn tröllríður tískuheiminum um þessar mundir er auðvelt að splæsa í par, hvort sem er frá lúxusmerkjunum eða á hagstæðara verði.
Tímalaus klassík
Klassíski stíllinn fær sinn tíma í sviðsljósinu og tískudívurnar sem aðhyllast frekar tímalausan stíl og klassískar umgjörðir munu hafa nóg um að velja. Þetta eru týpurnar fyrir þau okkar sem eru ekki á höttunum eftir nýjustu trendunum heldur leita að einu pari af sólgleraugum sem passa við allt, ár eftir ár.
Seventís
Flugmannagleraugu í anda áttunda áratugarins eru ekki á förum enda hrikalega töffaraleg. Hér eru nokkur sem við erum extra skotnar í.