Fara í efni

ZARA í samstarfi við stílstjörnuna Leandra Medine

Tíska - 9. apríl 2026

Samstarf ZARA og Leandra Medine Cohen fangar vel anda tískunnar í dag, þar sem mörkin milli fjöldaframleiðslu og persónulegs stíls verða sífellt óljósari. Í nýrri vorlínu mætast hagnýtur flíkur og leikandi sýn Leöndru, með áherslu á einföld snið, óvænt hlutföll og ákveðið kæruleysi sem hvetur fólk til að treysta á eigið innsæi frekar en að fylgja fyrirfram gefnum reglum.

ZARA x Leandra Medine

Zara, 13.995-8.995 kr.
Zara, 6.995-5.595 kr.
Þessi jakki fór beint á óskalistann okkar! Zara, 19.995 kr.
Zara, 4.595-11.995 kr.
Zara, 6.995-8.995 kr.
Zara, 7.995-8.995 kr.
Kjút sumarátfitt! Zara, 6.995-6.995 kr.
Zara, 6.995-3.995 kr.

Hver er Leandra Medine?

Leandra Medine Cohen er bandarískur rithöfundur og áhrifavaldur sem sló í gegn með blogginu Man Repeller, þar sem hún hvatti konur til að klæða sig fyrir sjálfar sig frekar en að þóknast öðrum. Á ferli sínum hefur hún haft veruleg áhrif á það hvernig nútímakonur nálgast stíl, með blöndu af húmor, tilraunagleði og sterkri sjálfsvitund. Hún segir fatastílinn sinn endurspegla hvert tímabil í lífi sínu og segir hann hafa þróast frá því að vera tilraunakenndur yfir í það að vera markvissari, án þess þó að glata sjálfri sér og leita nýrra leiða til að líða vel í eigin skinni.
Leandra Medine er ein áhrifamesta stílstjarna nútímans og gerði garðinn frægan með blogginu Man Repeller á sínum tíma. Hér sést hún í New York á síðustu tískuviku.

Meira úr tísku

Tíska

Á óskalista stílista úr Kappahl

Tíska

Liturinn sem stal senunni á tískuvikunni í París

Tíska

Steldu stílnum hennar Laufeyjar

Tíska

Parísartískan lent í Smáralind

Tíska

Sparidress fyrir fermingar­mömmur

Tíska

Fermingarfötin 2026

Tíska

Stærstu trendin á tískuviku í Köben

Tíska

Fermingar­tískan úr Galleri 17