Fara í efni

Sumarlegasta lína H&M til þessa

Tíska - 20. apríl 2021

Nýjasta sumarlína H&M minnir okkur á að tengjast náttúrunni hvar svo sem við erum. Þessi guðdómlega, rómantíska lína er sú sumarlegasta frá H&M til þessa.

Línan á að minna okkur á tilfinninguna að liggja úti á túni og njóta villtrar náttúrunnar allt í kring.

Fjórir ungir hönnuðir H&M eru snillingarnir á bakvið línuna en mynstrið er handmálað með vatnslitum og flíkurnar eru úr lífrænu bómullarefni. Markmiðið er að skapa þá tilfinningu að geta tengst náttúrunni sama hvar maður er.

Mynstrið er guðdómlega fallegt og nýtur sín vel á náttúrulegu efninu.

Bakhlutinn á kjólunum er ekki síður fallegur.

Okkar uppáhöld

Hér eru þær flíkur sem okkur þykja fallegastar úr A Meadow Of Wildflowers-línunni en kjólarnir eru hver öðrum fallegri. Hugsanlega eru þó síðerma kjólarnir hentugri fyrir íslenska sumarið.

Þessi rómantíski toppur væri fullkominn við beinar, uppháar gallabuxur og fallega sandala í sumar.

A Meadow Of Wildflowers-línan er væntanleg í flagship-verslun H&M í Smáralind.

Meira úr tísku

Tíska

ZARA í samstarfi við stílstjörnuna Leandra Medine

Tíska

Á óskalista stílista úr Kappahl

Tíska

Liturinn sem stal senunni á tískuvikunni í París

Tíska

Steldu stílnum hennar Laufeyjar

Tíska

Parísartískan lent í Smáralind

Tíska

Sparidress fyrir fermingar­mömmur

Tíska

Fermingarfötin 2026

Tíska

Stærstu trendin á tískuviku í Köben