Fara í efni

Trendin á tískuviku

Tíska - 26. september 2023

Eftir að hafa skrollað í gegnum aragrúa götutískumynda frá tískuvikunni í Mílanó komumst við að því að tvö fylgihlutatrend tröllriðu öllu.

Áberandi eyrnalokkar

Það var eitt trend sem stóð algerlega upp úr að okkar mati þegar myndir frá nýliðinni tískuviku í Mílanó eru skoðaðar. Allir og amma þeirra báru áberandi eyrnalokka í anda þeirra sem Bottega Veneta gerði vinsæla fyrir ekki svo löngu síðan. Stórir, áberandi hnullungar í eyrum skal það vera. Ekki er verra ef stíllinn er örlítið „vintage“ í útliti. Skoðum eyrun á stílstjörnunum á tískuviku!
Vintage-stíll sem er svo vinsæll um þessar mundir. Nú er tíminn til að kíkja í skartgripaskrínið hennar mömmu-eða jafnvel ömmu.
Þessir Bottega Veneta-eyrnalokkar störtuðu trendinu.
Smekkleg pörun.
Bottega-lokkarnir í silfri.
Eyrnakonfekt par excelans!
Blómabarn á tískuviku.
Með hjarta úr gulli.
Trés chic!
Gullklumpur sem nær yfir hálft eyrað, þetta er það sem koma skal.
Leikur að formum.
Dass af lit sakar ekki.
Fallegt form.
Silfurskart er enn að trenda.
Enn ein stílstjarnan með Bottega-lokkana.
Og hér...
Skrítin og skemmtileg form í anda þessara eyrnalokka sem minna á Croissant eru að trenda.

Steldu stílnum

Zara, 2.995 kr.
Zara, 2.995 kr.
Zara, 2.995 kr.
Zara, 2.995 kr.
Sif Jakobs, Meba, 35.900 kr.
Sif Jakobs, Meba, 31.900 kr.
Jens, 8.900 kr.
Georg Jensen, Jens, 29.900 kr.
Jón og Óskar, 39.000 kr.
Jón og Óskar, 8.000 kr.
Jón og Óskar, 35.600 kr.

Ég sé rautt!

Við sáum rautt, bókstaflega, allstaðar á tískuviku og ekki síst í fylgihlutum á borð við töskur og skó.
Rauð Gucci-taska við rauðar sokkabuxur.
Skemmtileg form og rauði liturinn áberandi.
Við fundum geggjað „dupe“ fyrir þessa skó hérna fyrir neðan.
Hárauð Ferragamo-taska og hanskar eru flottir fylgihlutir við bleikan kjólinn.
Rauðir skór á Tamöru Kalinic.
Vínrauð og falleg taska við fölgrænan kjól.
Hér sjá skærrauðir skórnir um að tala.
Rauð Max Mara gleraugu og elegansinn í hámarki í stíl við Mílanó.
Dass af rauðu!
Við tengjum rauða litinn við Prada lógóið.
Horsebit Chain-taskan frá Gucci er sú nýjasta úr smiðju tískuhússins.
Ef þú ert ekki tilbúin að klæðast rauðum frá toppi til táar er um að gera að prófa rauðan fylgihlut, við lofum það gerir mikið fyrir átfittið.

Steldu stílnum

Lauren Ralph Lauren, Mathilda, 54.990 kr.
Zara, 6.995 kr.
Prada, Optical Studio, 75.700 kr.
Steinar Waage, 34.995 kr.
Zara, 7.995 kr.
Weekday, Smáralind.
Galleri 17, 13.995 kr.
Zara, 14.995 kr.
Ruby Woo frá MAC er svo klæðilegur og klassískur rauður varalitur. MAC, 5.590 kr.

Meira úr tísku

Tíska

Frískaðu upp á fataskápinn fyrir sumarið

Tíska

Þetta trend verður út um allt í sumar

Tíska

50 sætustu sundfötin fyrir sumarið

Tíska

20% afsláttur af heimsþekktum vörumerkjum á borð við Polo Ralph Lauren

Tíska

50 sætustu sparikjólarnir

Tíska

Flottasta golflína J. Lindeberg hingað til

Tíska

Þetta þurfa karlarnir að eiga í fataskápnum fyrir vorið

Tíska

Rándýr lúkk úr ZARA fyrir vorið