Fara í efni

Trendin sem þú getur tileinkað þér strax

Tíska - 27. september 2021

Stílistinn okkar tók saman nokkur hausttrend sem auðvelt er að byrja að tileinka sér nú þegar.

Púff!

Ýkt stórar dúnúlpur (því stærri, því betri!) eru ekki að fara neitt í bráð. Nú er sko hægt að pakka sér almennilega inn í úlpu sem lúkkar eins og svefnpoki, það er alltaf plús í okkar bókum á hryssingslegum haustmorgnum.

Í búðum

Heimaprjón

Krúttlegar og persónulegar prjónapeysur og -vesti slá í gegn og við skiljum vel ástæðu vinsældanna. Nú er bara að taka fram prjónana!

Í búðum

Klossaðir skólastelpuskór

Kryddaðu upp á dressið með svokölluðum loafers.

Í búðum

Peysukjólar

Tískuhús á borð við Gabriela Hearst og Chloé sendu frá sér síða og djúsí peysukjóla sem smellpassa í vinnuna í haust og vetur. Paraðu við chunky stígvél og þú ert meðidda!

Í búðum

Loðskór

Ljúfir og loðnir inniskór eru að trenda og því hægt að vera bæði hlýtt á tásunum heima við og líka svolítið smart.

Í búðum

Skyrtujakkar

Svokallaðir skyrtujakkar eru tilvaldir til að „layera“ undir aðra jakka eða kápur eða einir og sér þegar hlýrra er í veðri.

Loewe haustið 2021. Mynd: IMAXtree.

Í búðum

Meira úr tísku

Tíska

Stærstu trendin á tískuviku í Köben

Tíska

Fermingar­tískan úr Galleri 17

Tíska

Vortrendin 2026 sem stílistinn okkar er spenntust fyrir

Tíska

Stílisti velur yfirhafnir á útsölu

Tíska

Nýtt og spennandi í ZARA

Tíska

Glimmer & glans á áramótum

Tíska

Jólagjafa­óskalisti skvísunnar

Tíska

Jóladressið 2025