Fara í efni

Nýtt úr ZARA sem við erum slefandi yfir

Tíska - 21. júlí 2022

Vefsíða Zara er alltaf með í netrúntinum okkar. Kannski af því að við vinnum við að sigta út það flottasta hverju sinni en líka því það veitir okkur alltaf innblástur. Stíliseringin og myndatakan er á pari við að skoða tískubiblíu á borð við Vogue. Hér eru nokkur item sem fengu hjartað okkar til að taka aukakipp.

Dragt drauma okkar

Það sem var kveikjan að þessari færslu er þessi forláta dragt sem við getum ekki hætt að hugsa um. Undirrituð sendi link á nokkrar vinkonur sem myndu rokka þessa. Best við smá tan og geggjaða hæla. Love it!
Zara, 12.995 kr.

Flottustu samfellurnar í bænum

Við fáum ekki nóg af samfellunum úr Zara. Geggjaðar við gallabuxur og blazer og þú ert komin með spot on átfitt hvort sem það er í vinnuna eða út á lífið.
Zara, 4.995 kr.
Zara, 3.995 kr.
Zara, 3.495 kr.
Svolítið Saint Laurent-væb! Zara, 6.495 kr.

Statement fylgihlutir

Síðustu ár hefur Zara verið að eisa fylgihlutahönnun sína. Tökum sem dæmi þennan LOVE-choker, Manolo-innblásnu hælaskóna og geggjaðar leðurtöskur í allskonar heitum litum. Okkur langar í þetta allt!
Zara, 3.495 kr.
Zara, 3.495 kr.
Zara, 10.995 kr.
Zara, 19.459 kr.
Zara, 10.995 kr.
Zara, 16.995 kr.

Sumarleg sett

Það er eitthvað við þetta lúxus-lega sett sem við getum ekki staðist og hörkjóllinn lúkkar tífalt dýrari en raun ber vitni. Geggjuð átfitt til að taka með sér til sólarlanda.
Zara, 6.495/5.495 kr.
Zara, 16.995 kr.

Beisik en ekki boring

Það má ekki vanmeta hinar fullkomnu gallabuxur en við elskum þessa 1975-týpu frá Zara. Eins er þessi röndótti toppur eitthvað svo trés chic og við sjáum 18 ára dóttur okkar alveg rokka stutta cardigan-inn með tónaða magann sinn.
Zara, 5.495 kr.
Zara, 3.995 kr.
Zara, 4.495 kr.

Tjúllað bikiní

Mynstrið minnir okkur á Missoni og sniðið er auðvitað mjög trendí þessi misserin.
Zara, 3.495/3.995 kr.

Kjólar í undirfatastíl

Korsett-innblásnir kjólar eru málið í dag, spyrjið bara Kourtney Kardashian. Okkur finnst þessir dásamlega fallegir.
Zara, 12.995 kr.
Zara, 8.495 kr.

Meira úr tísku

Tíska

20% afsláttur af heimsþekktum vörumerkjum á borð við Polo Ralph Lauren

Tíska

50 sætustu sparikjólarnir

Tíska

Flottasta golflína J. Lindeberg hingað til

Tíska

Þetta þurfa karlarnir að eiga í fataskápnum fyrir vorið

Tíska

Rándýr lúkk úr ZARA fyrir vorið

Tíska

Stílisti mælir með á afslætti á Kauphlaupi

Tíska

Hátískusólgleraugu á 25% afslætti

Tíska

Skrifstofu­gyðjan slær í gegn