Skemmtilega skrítið
Emili Sindlev er hin Skandinavíska Carrie Bradshaw sem er með þetta „je ne sais quoi“ sem er svo einstakt. Hún blandar saman stílum, stefnum, litum og vörumerkjum eins og enginn sé morgundagurinn og við erum að fílaða!
Appelsínugulu Prada kitten-hælarnir tóna skemmtilega við grænbláa átfittið og bleika Chanel-pokann.
Vatterað vesti og víðar buxur á Emili Sindlev sem er auðvitað snillingur í litasamsetningum.
Þetta mynstur köllum við seventís-veggfóður og hjólið er að sjálfsögðu besti fylgihluturinn á götum Kaupmannahafnar.
Sumarkjóll í hnotskurn, paraður við strigaskó og Gucci-tösku.
Smart par!
Guli liturinn heldur velli ef marka má Kaupmannahafnartískuna.
Skærgræni liturinn er enn hámóðins og skemmtilega ferskur. Hér fær Fendi-taskan að njóta sín með skærgrænum hælaskóm og sólgleraugum.
Dönsku tískustelpurnar eru óhræddar við að tjá sig í gegnum tískuna!
Mínimalískt
Skandí-stíllinn var ekki langt undan. Stundum er einfaldleikinn bara bestur, en auðvitað með dassi af „je ne sais quoi“.